Sport

Utan vallar: McGregor-sýningin fær fullt hús

Henry Birgir Gunnarsson. skrifar
Conor McGregor er engum líkur.
Conor McGregor er engum líkur. vísir/getty
Heitasta sýningin í Las Vegas um nýliðna helgi var McGregor-sýningin. Betur auglýst sem UFC 189 en Conor McGregor kallaði það alltaf McGregor-sýninguna. Var það algjört réttnefni á þessum viðburði.

Bardagakvöldið sló öll met. Aldrei hefur komið inn eins mikill peningur í aðgangseyri, aldrei hafa fleiri mætt á vigtun og líklega voru fleiri sjónvarpsáskriftir seldar að kvöldinu en áður í sögu UFC.

Fólk er brjálað í að sjá gullkálf UFC frá Dublin. Skiptir engu máli hvort fólk hatar eða elskar Conor. Það verða allir að sjá hann.

Hann er í einstökum hópi íþróttamanna sem hafa ótrúlegt aðdráttarafl. Hann er kjaftfor og yfirlýsingaglaður en það sem meira er þá er hann frábær bardagamaður.

Hann stendur alltaf við stóru orðin. Conor er fæddur skemmtikraftur og það skal engan undra að UFC hafi sett alla sína spilapeninga á hann. Sambandið er heldur betur að uppskera. Hann er orðinn aðalmaðurinn í UFC. Það er klárt.

Það var allt stærst og mest í MGM Grand þessa helgina en bardagarnir sem boðið var upp á voru hreint út sagt magnaðir. Það er ekki til sá maður sem fylgist með íþróttinni sem heldur öðru fram en að þetta hafi verið besta bardagakvöld UFC frá upphafi.

Það er alveg fyrir utan allt annað. Áhorfendur fengu fimm rosalega bardaga og þegar er byrjað að tala um bardaga Robbie Lawler og Rory MacDonald um heimsmeistaratitilinn í veltivigt sem besta bardaga í UFC frá upphafi.

Það var hreint út sagt ólýsanleg upplifun að fylgjast með þessu í návígi. Stemningin í höllinni, umgjörðin hjá UFC, sem var flottari en nokkru sinni fyrr, Írarnir sem héldu uppi stemningunni og svo þessir bardagar. Þetta var eitthvað sem maður lendir bara í einu sinni um ævina.

Það skemmdi svo ekkert fyrir að okkar menn – Gunnar Nelson og Conor McGregor – skyldu báðir klára sína bardaga. Það gerðu þeir líka báðir með eftirminnilegum hætti. Þetta var kvöld sem fór í sögubækurnar og mun aldrei gleymast.

MMA

Tengdar fréttir

Conor: Ég grét af gleði

Conor McGregor stóð við stóru orðin enn eina ferðina í nótt er hann varð heimsmeistari í fjaðurvigt eftir ótrúlegan bardaga gegn Chad Mendes.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×