Skoðun

Úr NATÓ án tafar!

Ástþór Magnússon skrifar

Óásættanlegt er að Íslendingar séu hluti af hernaðarbandalagi sem nú hefur skotið niður rússneska þotu sem vann að því að uppræta fyrir okkur hryðjuverkahópa sem ógna heimsfriðnum. Íslendingar eiga að senda Rússum samúðarkveðjur, fordæma þennan stríðsglæp og segja skilið við NATÓ.

Heimsstyrjaldar ástand er að skapast með stuðningi Íslendinga og NATÓ við brjálaða blóði drifna utanríkisstefnu Bandaríkjanna í hernaðarbrölti, stríðsglæpum og olíuþjófnaði í Mið-Austurlöndum sem hefur orsakað limlestingar, dauða og vergang milljóna manna á undanförnum árum.

Nú er þetta að snúast gegn okkur nákvæmlega eins og ég sagði í aðdraganda forsetakosninga fyrir 20 árum að myndi gerast ef ekki kæmi til ný hugmyndafræði. Ég dreifði bókinni „Virkjum Bessastaði“ inn á öll heimili á Íslandi og fór í auglýsingaherferð með þá hugmyndafræði að forseti Íslands gerist alþjóðlegur boðberi friðar og umburðarlyndis og að á Íslandi rísi háskóli friðar og lýðræðisþróunar. Eftir að hafa lesið hundruð bóka og greina erlendra fræðimanna um ástandið í heiminum var mér ljóst að snarbrjáluð hugmyndafræði Vesturlanda undir forystu Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum myndi leiða til átaka, sundrungar og upplausnarástands sem myndi dreifa sér um alla heimsbyggðina.

Lýðræði og friðsamlegu samfélagi verður ekki komið á með byssuvaldi, sprengjuárásum, leppstjórnum, stuðningi við vopnaða uppreisnarmenn né pyntingum úr smiðju Hvíta hússins. Hvorki Íslendingar né aðrar þjóðir geta byggt sér varanlega varnargarða gegn ofbeldi frá Mið-Austurlöndum né annars staðar. Við getum heldur ekki víggirt heimili hinna ríku. Mannkynssagan kennir okkur að slíkt samfélag gengur aldrei upp til lengdar. Við verðum að leysa orsök vandans. Ástandið sem er að skapast í Evrópu með gífurlegum flóttamannastraum verður ekki leyst með landamæraeftirliti. Hryðjuverkaógnin er einnig innan frá og tengist ekki flóttamönnum sérstaklega. Þá getum við ekki lokað flóttafólk af í gettóum eða búrum. Enginn sættir sig við þannig líf. Við sjáum í Palestínu margvísleg vandamál vegna hernáms, girðinga og múra. Slík Evrópa mun loga í ófriði.

Þeir sem vilja hugsa þetta út frá fjárhagslegum hagsmunum Íslendinga geta horft fram á hrun í ferðamannaiðnaði þegar fólk hættir að vilja ferðast vegna hryðjuverkahættu. Komi til notkunar kjarnorkuvopna er ljóst að íslenskur sjávarútvegur er einnig í hættu því fiskurinn í sjónum þarf hreina náttúru eins og við sjálf. Íslendingar eiga að bera virðingu fyrir öðrum menningarheimum og trúarbrögðum.

Voðaverk ISIS/Daesh eru ekki af trúarlegum orsökum. Þeirra glæpir og hryðjuverk hafa ekkert með venjulega múslima að gera sem eru nánast allir mjög friðsamt og umburðarlynt fólk. Blóð þeirra milljóna sem spillt hefur verið með hernaðarbrölti okkar í Mið-Austurlöndum eru fæða þessara glæpasamtaka sem hafa vaxið eins og risavaxinn snákur undir sandinum og sem nú hefur risið upp gegn skapara sínum, Vesturlöndum. Við þurfum að horfast í augu við að bera ábyrgð á þessu fyrirbæri ásamt bandalagsþjóðum okkar í NATÓ.

Tími er kominn að Íslendingar sýni í verki að við erum þjóð friðar og umburðarlyndis. Nú vantar ljósberann frá Íslandi í pólitíska umræðu á alþjóðavettvangi og þá nýju hugmyndafræði Friðar 2000 sem ég hef í tuttugu ár talað fyrir að forseti Íslands boði heimsbyggðinni. Sá hornsteinn friðar, kærleika og umburðarlyndis sem lagður var af Þorgeiri ljósvetningagoða á Alþingi fyrir rúmum þúsund árum er mannkyninu ekki síður mikilvægur boðskapur en sjálft jólaguðspjallið. Virkjum Bessastaði.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×