Sport

Upphitun fyrir bardaga Gunnars Nelson

Óskar Örn Árnason skrifar
Conor McGregor og Diego Brandao verða í aðalbardaga kvöldsins í kvöld.
Conor McGregor og Diego Brandao verða í aðalbardaga kvöldsins í kvöld. Vísir/Kjartan Páll Sæmundsson
Í kvöld er komið að því, Gunnar Nelson stígur aftur í búrið og að þessu sinni í Írlandi. Bardaginn verður næstsíðasti bardagi kvöldsins en Gunnar hefur aldrei verið jafn ofarlega í röðinni á bardagakvöldi í UFC.

Conor McGregor (14-2) gegn Diego Brandao (18-9) - fjaðurvigt (66 kg)

Aðalbardagi kvöldsins verður gríðarlega spennandi. Conor McGregor þarf varla að kynna fyrir íslenskum MMA aðdáendum. Hann hefur árum saman verið einn mikilvægasti æfingarfélagi Gunnars Nelson en þeir deila einnig sama þjálfara, John Kavanagh. Rafmagnaður persónuleiki McGregor ásamt gríðarlegum bardagahæfileikum hafa gert hann að stórstjörnu í íþróttinni á stuttum tíma. Þessi bardagi er stór stund í lífi hans þar sem hann fer fram á heimavelli Írans, þ.e. Dublin.

3 atriði til að hafa í huga

  • McGregor er að koma til baka eftir meiðsli sem hafa haldið honum frá keppni í tæpt ár.
  • Hann hefur tapað tvisvar, í bæði skiptin eftir uppgjafartök
  • Hann er frægur fyrir stórkostleg spörk og er einn færasti boxarinn í UFC
Diego Brandao er ungur og hæfileikaríkur bardagamaður frá Brasilíu. Hann hefur unnið fjóra af sex bardögum sínum í UFC en þarf á sigri að halda í þessum bardaga eftir slæma frammistöðu í hans síðasta bardaga í desember. Frammistöður hans hafa verið misjafnar í átthyrningnum en engu að síður er hann hættulegur bardagamaður. Brandao sigraði 14. seríu af The Ultimate Fighter sem var ein sterkasta þáttaröðin í langan tíma.

3 atriði til að hafa í huga

  • Brandao var rotaður í fyrstu lotu í hans síðasta bardaga
  • Hann er með svart belti í jiu jitsu
  • Hann er höggþungur og vill fyrst og fremst berjast standandi
Gunnar Nelson (12-0-1) gegn Zak Cummings (17-3) - veltivigt (77 kg)

Gunnar Nelson er einstakur íþróttamaður eins og Íslendingar ættu allir að vera búnir að átta sig á. Hæfileikar, hógværð og vinnusemi hafa komið honum í fremstu röð MMA bardagamanna í heiminum. Það eru engin takmörk fyrir því hversu langt hann getur náð en í þessum bardaga mætir hann sennilega besta glímumanni sem hann hefur keppt við til þessa.

3 atriði til að hafa í huga

  • Gunnar er að koma úr bestu æfingabúðum sínum á ferlinum að eigin sögn
  • Írland er nánast eins og annað heimili fyrir Gunnar, hann berst því á heimavelli
  • Hann var að eignast sitt fyrsta barn
Zak Cummings er lítið þekktur en reyndur bardagakappi. Hann komst ekki langt í The Ultimate Fighter en tapaði á stigum í 8-manna úrslitum. Cummings hefur nú sigrað tvo bardaga í UFC og vill nú bæta höfuðleðri Gunnars Nelson í safnið. Cummings er stór og sterkur veltivigtarmaður sem stólar mikið á glímu til að sigra sína bardaga.

3 atriði til að hafa í huga

  • Cummings hefur unnið 10 bardaga með uppgjafartaki
  • Hann var ósigraður í fyrstu 10 bardögum sínum en tapaði í fyrsta skipti fyrir Tim Kennedy
  • Hann hefur barist í millivigt og létt þungavigt
Gunnar Nelson mætir Zak Cummings í Dublin á laugardagskvöld.  Þessi stórbardagi verður í beinni á Stöð 2 Sport og hefst útsending kl. 19:00.  Fáðu þér áskrift áwww.365.is.

Vísir og MMA Fréttir starfa saman í umfjöllun um MMA. Ekki gleyma að setja "like" við Facebook síðu þeirra hér.

MMA

Tengdar fréttir

Flugeldasýning milli Pickett og McCall áður en Gunnar berst

Annað kvöld snýr Gunnar Nelson aftur í búrið þegar hann mætir Bandaríkjamanninum Zak Cummings. Bardaginn er einn af fjórum bardögum á aðal hluta bardagakvöldsins sem sýndur verður á Stöð 2 Sport. Fyrstu tveir bardagar kvöldsins verða hörku spennandi viðureignir í léttvigt og fluguvigt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×