Innlent

Undirskriftir á Þjóðareign komnar yfir fjörutíu þúsund

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Fróðlegt verður að sjá hvernig Ólafur Ragnar Grímsson bregst við samþykki Alþingi lögin.
Fróðlegt verður að sjá hvernig Ólafur Ragnar Grímsson bregst við samþykki Alþingi lögin. Vísir/Anton
Rétt tæplega 41 þúsund manns hafa skrifað nafn sitt á vefsíðuna Þjóðareign.is og skora þar með á forseta Íslands að vísa í þjóðaratkvæðagreiðslu „hverjum þeim lögum sem Alþingi samþykkir þar sem fiskveiðiauðlindum er ráðstafað til lengri tíma en eins árs á meðan ekkert ákvæði um þjóðareign á auðlindum hefur verið sett í stjórnarskrá og þjóðinni ekki verið tryggt fullt gjald fyrir afnot þeirra.“

Aðstandendur söfnunarinnar segja að þátttaka sýni fram á hina gríðarlegu undirliggjandi óánægju í samfélaginu um skipan sjávarútvegsins og að auðlind í almannaeigu, fiskveiðiheimildunum, skuli úthlutað með þeim hætti sem nú sé gert.

„Slíkt ætti að verða ríkisstjórninni hvatning til að leita raunverulegra sátta við þjóðina um hvernig standa eigi að úthlutun fiskveiðiheimilda í framtíðinni.“

Undirskriftasöfnunin hófst á verkalýðsdaginn, 1. maí en að henni standa Agnar K. Þorsteinsson, Bolli Héðinsson, Guðrún Pétursdóttir, Henný Hinz, Jón Sigurðsson, Jón Steinsson og Þorkell Helgason.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×