Innlent

Undirbúa opnun fjöldahjálparstöðva

Randver Kári Randversson skrifar
Vísir/Pjetur
Vegna eldgossins í Dyngjujökli hafa öll Jökulsárgljúfur verið rýmd og er umferð um vegina vestan-  og austanmegin við þau lokuð vegna mögulegrar hættu á hlaupi í Jökulsá á Fjöllum. Þá er unnið að því að rýma svæðin við Vesturdal, Hljóðakletta, Dettifoss og allar gönguleiðir á svæðinu.  

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Húsavík eru allir viðbragðsaðilar á svæðinu í viðbragðsstöðu og er unnið á hættustigi. Beðið er frekari upplýsinga um jarðhræringarnar í Dyngjujökli,en sjáist teikn um að hlaup sé hafið í Jökulsá á Fjöllum verða byggðirnar í Kelduhverfi, Núpasveit og Öxarfirði rýmdar. Komi til þess þá er undirbúningar hafinn að því að opna fjöldahjálparstöðvar á Húsavík, Kópaskeri og í grunnskólanum í Reykjahlíð á Mývatni.


Tengdar fréttir

Hraungos hafið undir Dyngjujökli

Talið er að lítið hraungos sér hafið undir Dyngjujökli. Talið er að um 150-400 metra þykkur ís sé yfir svæðinu. Litakóði fyrir flug hefur verið færður upp færður úr appelsínugulu í rautt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×