Skoðun

Umræðufundur um loftslagsmál

Ingrid Kuhlman skrifar

Dagana 1.-2. september verður haldinn Fundur fólksins í Norræna húsinu. Fundur fólksins er lýðræðishátíð í anda slíkra viðburða sem hafa fest sig í sessi á hinum Norðurlöndunum undanfarin ár, s.s. Almedalsveckan á Gotlandi í Svíþjóð, Folkemødet á Bornholm í Danmörku og Arendalsuka í Noregi. Fundur fólksins á Íslandi var haldinn í fyrsta skipti 11.-13. júní 2015. 

París 1,5, sem er baráttuhópur um að Ísland standi við loforðið frá Parísarsamkomulaginu um að gera það sem þarf til að tryggja að hitastig á jörðinni hækki ekki meira en sem nemur 1,5°, verður með umræðufund 2. september kl. 15.30. Á fundinum verður farið lauslega yfir stöðu loftslagsmála á Íslandi og hvað þurfi að gerast til að árangur náist. Í lok fundarins er ætlunin að fulltrúar stjórnmálaflokkanna segi fra því sem þeir telja brýnt að gera. Vinstri grænir, Björt framtíð, Viðreisn og Alþýðufylkingin hafa nú þegar staðfest þátttöku sína.

Loftslagsmálin eru yfir allar línur stjórmálaflokkanna. Í dag er enginn flokkur með alvöru stefnu í loftslagsmálunum og svo sannarlega kominn tími á aðgerðir. Það er mikið í húfi og við sem þjóð erum eftirbátur þeirra þjóða sem við berum okkur saman við. Hér eru nokkrar hugmyndir að aðgerðum:

  • Skipa ráðherra loftslagsmála í næstu ríkisstjórn.
  • Fullgilda viðauka 6 við Marpol samkomulagið til að tryggja að þau skip sem sigla í íslenskri landssögu brenni ekki verstu tegund af olíu.
  • Hætta allri olíuleit og stöðva allar hugmyndir um olíuvinnslu tafarlaust.
  • Ákveða að eftir árið 2025 verði innflutningur bifreiða sem brenna jarðefnaeldsneyti bannaður og háður sérstökum undanþágum. 
  • Tryggja ívilnanir til 2025 fyrir kaupum á farartækjum sem nota vistvænt eldsneyti í stað jarðefnaeldsneytis. 
  • Setja í forgang að hraða allri innviðauppbyggingu sem ýtir undir þróun yfir í vistvænt eldsneyti. 
  • Nota skattkerfið til hins ítrasta til að stýra hegðun neitenda, t.d. lækka skatta á allt sem er visvænt og hækka skatta á brennslu jarðefnaeldsneytis. 
  • Ráðherrar sýni gott fordæmi og aki allir á bifreiðum sem flokkast sem vistvænar. 
  • Byggja innviði fyrir frekari notkun hjóla og ýta undir það á allan mögulegan hátt og tryggja góðar almenningssamgöngur. 
  • Endurheimta votlendi innan þriggja ára i samstarfi við bændur.
  • Draga úr allri sóun og fylgja fordæmi Frakka sem banna stórmörkuðum að henda vörum. 
  • Rýna í fjárlögin með „loftslagsgleraugum“ í anda „kynjaðra fjárlaga“ til að tryggja að hámarksárangur náist í loftslagsmálum. 
  • Efla ræktun á innlendum vörum og ýta undir kaup á vörum úr nærumhverfi. 
  • Veita grænmetisbændum allan þann stuðning sem þarf til að sinna innanlandsmarkaði. 
  • Draga úr framleiðslu og neyslu á kjöti. 
  • Stórefla rannsóknir á áhrifum súrnunar í hafinu við strendur landsins og undirbúa áætlun til að takast á við fyrirsjáanlegar breytingar á lífríki hafsins sem hafa áhrif á fiskistofna. 
  • Hætta að nota verga landsframleiðslu og hagvöxt sem mælikvarða til að mæla hagsæld og skoða aðra mælikvarða í anda þess sem gert er í Bútan. 
  • Ýta úr vör öllum þeim ágætu tillögum sem Alþingi samþykkti einróma árið 2012 um Eflingu græna hagkerfisins. 

Loftslagsmálin snerta nær alla fleti okkar samfélags. Ég vona að áhugasamir láti sig þessi mál varða og mæti á umræðufund Parísar 1,5 þann 2. september n.k.

 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×