Innlent

Umferðin gekk hægt í Kórahverfinu í morgun

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Hér má sjá umferðina í morgun.
Hér má sjá umferðina í morgun.
Margir urðu varir við umferðateppu á höfuðborgarsvæðinu í morgun, eins og komið hefur fram á Vísi fyrr í dag.

Á meðfylgjandi mynd má sjá umferðina í Kórahverfinu í morgun um níuleytið. Myndina tók Pétur Fannberg Víglundsson, sem ákvað að ganga með syni sínum í leikskólann, í stað þess að setjast upp í bílinn

„Já, ég ákvað að ganga með drenginn í leikskólann og spraði mér alveg hellings tíma," útskýrir hann. Pétur segist ekki vita nákvæmlega hversu lengi umferðateppan stóð yfir. „Allavega í hálftíma, örugglega lengur.

Nú er búið að greiða úr þessari flækju og hafa væntanlega allir komist leiðar sinnar. Í morgun birti Vísir myndband af umferðarteppu í Vatnsendahverfinu, þar sem sjá mátti hversu hægt umferðin gekk.

Lentir þú í umferðarteppu eða öðrum vandræðum vegna veðursins í morgun? Láttu okkur vita á ritstjorn@visir.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×