Skoðun

Um mikilvægi samráðs

Ásthildur Sturludóttir skrifar
Varla hefur farið fram hjá neinum umræðan um sameiningu heilbrigðisstofnana, sýslumanns- og lögreglustjóraembætta á landsbyggðinni á síðustu misserum. Viðbrögðin hafa verið hörð hjá heimamönnum, eðlilega, þar sem um stórkostlega samfélagsbreytingu er að ræða í þorpunum sem um ræðir. Hugmyndirnar eru svo sem ekki nýjar af nálinni því í hvert sinn sem ný ríkisstjórn tekur við stjórnartaumunum eru sameiningar stofnana á landsbyggðinni fyrstu tillögur nýrra ráðherra. Mörgum þykir e.t.v. einkennileg þessi heita umræða og hörð mótmæli íbúa, en sannleikurinn er sá að málflutningur heimamanna snýst um að í boði sé sjálfsögð þjónusta við íbúa, atvinnutækifæri og eðlileg samfélagsmynd. Hvernig samfélag væri það ef örfáir íbúar höfuðborgarsvæðisins væru með háskólamenntun og aðra sérmenntun? Er það samfélag líklegt til framfara?

Með téðum breytingum er aldagamalli hefð um staðsetningu sýslumanna og sjálfstæðra heilbrigðisstofnana raskað. Sem dæmi þá hefur á Patreksfirði setið sýslumaður síðan 1881 og sjúkrahús verið starfrækt frá árinu 1902. Sjúkrahús eru öryggisnet og ein grundvallarforsenda þess að byggð hefur haldist í landinu okkar. Öryggi íbúanna ætti að vera forgangsmál en ekki excel-æfingar embættismanna sem sjá það fyrir sér að mikill sparnaður geti orðið af niðurskurði á landsbyggðinni. Margir hafa hins vegar dregið í efa að einhver sparnaður hafi orðið af sameiningu stofnana.

Aðstæður á Vestfjörðum eru einstakar þegar litið er á samgöngur. Sunnanverðir Vestfirðir eru eyland stóran hluta ársins. Frá október og fram í maí er ekki hægt að tryggja samgöngur milli norður- og suðursvæðis og leiðin til Reykjavíkur getur verið torfær. Það væri áhugavert fyrir þessa ágætu höfunda sameiningarhugmyndanna að vera fastir á Hálfdan um hávetur á leið í sjúkraflug. Ef til vill yrðu hugmyndirnar aðrar.

Viðbrögð embættismanna og ráðamanna eru fjarri því að vera ásættanleg; heimafólk hefur hingað til ekki fengið að taka þátt í undirbúningi eða ákvörðunum. Allir hagsmunaaðilar hafa hins vegar mótmælt; sveitarstjórnir á Vestfjörðum, Fjórðungssambandið og þingmenn kjördæmisins og starfsfólk sjúkrastofnananna. Ekkert er hlustað á þessa aðila sem þekkja reksturinn og þjónustuna best. Ekkert samráð hefur átt sér stað þó svo að ætlast sé til þess af löggjafanum. Óvissa og óöryggi magnast hjá íbúum og starfsfólki stofnananna enda fátt vitað um framhaldið. Enn er tími til þess að taka aðra ákvörðun út frá hagsmunum heimamanna og í samráði við þá. Það eru hinar réttu þjóðhagslegu ákvarðanir og um þetta verður að nást sátt.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×