Sport

UFC 192: Hvað gerir Gustafsson gegn nýja meistaranum?

Pétur Marinó Jónsson skrifar
Cormier og Gustafsson í vigtuninni í gær.
Cormier og Gustafsson í vigtuninni í gær. Vísir/Getty
UFC 192 fer fram í kvöld í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Í aðalbardaga kvöldsins mætir léttþungavigtarmeistarinn Daniel Cormier Svíanum Alexander Gustafsson í spennandi viðureign.

Daniel Cormier er nýkrýndur léttþungavigtarmeistari UFC eftir að hann sigraði Anthony Johnson í maí. Þeir Johnson og Cormier mættust um beltið eftir að léttþungavigtarmeistarinn Jon Jones var sviptur titlinum.

Í fyrstu titilvörn Cormier mætir hann Alexander Gustafsson. Sú ákvörðun að gefa Alexander Gustafsson titilbardaga var harðlega gagnrýnd þar sem Gustafsson tapaði sínum síðasta bardaga gegn fyrrnefndum Johnson.

Þrátt fyrir gagnrýnina gæti Gustafsson verið með réttu vopnin í vopnabúrinu til að taka nýja beltið hans Cormier. Gustafsson er með gott box en einnig með framúrskarandi felluvörn sem mun skipta miklu máli í kvöld.

Það mun mæða mikið á felluvörn Gustafsson enda er Cormier einn allra besti glímumaður sem stigið hefur fæti í UFC búrið. Cormier komst tvisvar á Ólympíuleikana í frjálsri glímu og náði fjórða sætinu í annað skiptið.

Sjá einnig: Vonbrigði Daniel Cormier

Gustafsson tókst að stöðva fellur Jon Jones á sínum tíma er þeir börðust um titilinn og gæti gert það sama gegn Cormier. Gustafsson kom gríðarlega á óvart gegn Jones og gæti gert það sama gegn Cormier. Gustafsson tapaði fyrir Jones en tekst honum að gera betur gegn nýja meistaranum Cormier?

Það verða fimm bardagar á dagskrá í kvöld. Bardagi Johny Hendricks og Tyron Woodley átti að fara fram í kvöld en var aflýst í gær eins og kom fram á vef MMA Frétta. Í stað Hendricks og Woodley var bardagi Ali Bagautinov og Joseph Benavidez færður upp á aðalhluta bardagakvöldsins.

Bein útsending frá UFC 192 hefst kl 2 á Stöð 2 Sport. Eftirtaldir fimm bardagar verða á dagskrá:

Titilbardagi í léttþungavigt: Daniel Cormier gegn Alexander Gustafsson

Léttþungavigt: Rashad Evans gegn Ryan Bader

Þungavigt: Shawn Jordan gegn Ruslan Magomedov

Fluguvigt: Joseph Benavidez gegn Ali Bagautinov

Bantamvigt kvenna: Jessica Eye gegn Julianna Peña

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×