Sport

UFC 179: Mendes vill hefnd

Pétur Marinó Jónsson skrifar
Í kvöld fer UFC 179 fram í beinni á Stöð 2 Sport. Í aðalbardaga kvöldsins mætast þeir Jose Aldo og Chad Mendes um fjaðurvigtartitilinn.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þeir Jose Aldo og Chad Mendes mætast. Bardagamennirnir öttu kappi í janúar 2012 en þá sigraði Jose Aldo hinn bandaríska Chad Mendes með rothöggi þegar ein sekúnda var eftir af fyrstu lotu. Nú getur Mendes hefnt fyrir hans eina tap á ferlinum.

Sigurinn var að vissu leiti umdeildur þar sem Aldo greip í búrið sem hjálpaði honum að verjast fellu Mendes. Skömmu síðar rotaði Aldo Mendes.

Jose Aldo hefur varið fjaðurvigtarbelti sitt í átta skipti og er ósigraður í UFC. Aldo þykir einn allra besti bardagamaður heims, pund fyrir pund, og hefur ekki lent í teljandi vandræðum með að verja beltið sitt í UFC. Hann er með virkilega gott Muay Thai og eru spörkin hans með þeim betri í bransanum. Af 24 sigrum hans hafa 14 komið eftir rothögg.

Vandamálið hjá Aldo er að svo virðist sem niðurskurðurinn sé of erfiður fyrir hann en hann þykir stór í fjaðurvigtinni. Þannig hefur hann eilítið fjarað út í seinni lotum bardagans vegna þreytu og á Chad Mendes mestu möguleika á sigri nái hann að draga bardagann í seinni loturnar.

Chad Mendes er verulega sterkur glímumaður. Hann átti góðan feril í bandarísku háskólaglímunni þar sem hann var tvisvar meðal átta efstu á landsvísu í efstu deild. Eftir tapið gegn Aldo hefur Mendes verið óstöðvandi og sigrað fimm bardaga í röð og þar af fjóra með rothöggi.

Mendes æfir hjá Team Alpha Male og Jose Aldo hjá Nova Uniao. Þetta verður í sjötta sinn sem þessi lið mætast um titil í UFC en aðeins einu sinni hefur Team Alpha Male haft betur. Það átti sér stað fyrr á þessu ári þegar TJ Dillashaw sigraði góðvin Jose Aldo, Renan Barao, eftir rothögg í 5. lotu. Takist Mendes að taka titil Aldo verða allir UFC meistararnir bandarískir.

Mendes á mestu möguleika á sigri ef hann notar fellurnar sínar og dregur Aldo í seinni lotur bardagans. Aldo er hættulegastur í fyrstu tveimur lotunum og takist Mendes að lifa þær af er aldrei að vita nema hvort við fáum nýjan fjaðurvigtarmeistara. Nánar má lesa um meistarann Jose Aldo hér.

UFC 179 er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hefst útsendingin kl 2.

MMA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×