Tyson er ekkert velkominn Guðrún Ansnes skrifar 4. júlí 2015 10:00 "Í dag er kominn tími fyrir "zero tolerance“, það er komið nóg af því að leyfa mönnum að njóta vafans trekk í trekk þegar þeir sýna engin merki um betrun.“ Mynd/aðsend „
Þetta er hreint út sagt óvirðing við konurnar sem hann hefur beitt ofbeldi og ákveðin tegund af þöggun á þeirra upplifun. Hans upphafning er þeirra þöggun. Þess vegna varð þessi undirskriftalisti til,“ segir Elísabet Ýr Atladóttir, ein meðlima hópsins Aktivistar gegn nauðgunarmenningu, sem stendur að baki undirskriftalista gegn komu boxarans Mikes Tyson til landsins með sýninguna The Undisputed Truth. Í vikunni sem leið birtust fréttir þess efnis að þessi umdeildi íþróttamaður, sem jafnframt er dæmdur nauðgari, væri væntanlegur til landsins með haustinu, þar sem hann mun standa fyrir sýningu sem byggð er á ferli hans frá upphafi og verður ekkert látið ósagt. „Þegar konur hafa loks rofið þögnina og talað opinskátt um kynbundið ofbeldi af öllum toga er óásættanlegt að dæmdur nauðgari og ofbeldismaður fái slíka heiðursmeðferð,“ segir meðal annars í yfirlýsingu hópsins á síðu undirskriftalistans.Mike TysonÞykir heldur undarlegt að maður með nauðgunardóm á bakinu og ríkulega forsögu um ofbeldi í garð kvenna skuli upphafinn með þessum hætti og boðinn velkominn til landsins. Vonast Elísabet til að með undirskriftalistanum verði hægt að vekja fólk til umhugsunar: „því það er ómögulegt að maður eins og Mike Tyson sé settur upp sem einhvers konar fyrirmynd fyrir karla. Við berum öll ábyrgð á því að menn geti ekki sópað brotum sínum undir teppið. Með því að gefa pláss fyrir þessa sýningu værum við í raun að gefa samþykki fyrir því að hann tæki aldrei ábyrgð. Við værum að gefa í skyn að brot hans gegn þessum konum sé ekki nógu mikilvægt, ekki nógu alvarlegt, að okkur finnist hans ferill mikilvægari en þeirra réttlæti. Sem samfélag verðum við að gefa skýr skilaboð til ofbeldismanna að við tökum ekki þátt í þögguninni lengur.“ Nú þegar hafa rúmlega hundrað og fimmtíu skráð sig á listann sem fór í loftið á miðvikudag. „Við komumst vonandi í samband við skipuleggjendur fljótt svo við getum komið listanum áleiðis þegar söfnun lýkur,“ segir Elísabet að lokum.
Tengdar fréttir Mike Tyson á leið til landsins Mun flytja sýningu sína Óumdeildi sannleikurinn. 27. júní 2015 14:17 Tyson hraunar yfir Mayweather: Hann er lítill maður og veruleikafirrtur Fyrrverandi heimsmeistarinn í þungavigt segir menn sem ekki geta farið einir með börnin sín í skólann ekki vera merka menn. 1. maí 2015 23:15 Tyson gaf aðdáanda olnbogaskot Það er nauðsynlegt að fara varlega að Mike Tyson. Það ættu allir að vita en það fannst maður sem vissi það ekki. 6. maí 2015 23:15 Mest lesið Stigu trylltan dans á Saint Pete Lífið Ugla yfirgefur borgina Lífið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Lífið Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins Lífið samstarf Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Lífið Stelpurnar snúa aftur Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Sjá meira
Tyson hraunar yfir Mayweather: Hann er lítill maður og veruleikafirrtur Fyrrverandi heimsmeistarinn í þungavigt segir menn sem ekki geta farið einir með börnin sín í skólann ekki vera merka menn. 1. maí 2015 23:15
Tyson gaf aðdáanda olnbogaskot Það er nauðsynlegt að fara varlega að Mike Tyson. Það ættu allir að vita en það fannst maður sem vissi það ekki. 6. maí 2015 23:15