Fótbolti

Tyrkir tættir í sundur í Dalnum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Strákarnir fagna fyrra markinu gegn Tyrkjum.
Strákarnir fagna fyrra markinu gegn Tyrkjum. vísir/andri marinó
Ísland er enn taplaust og ásamt Króatíu á toppi síns riðils í undankeppni HM 2018. Þó svo að enn sé langur vegur fram undan að lokakeppninni bar leikur liðsins í 2-0 sigri á Tyrklandi í gær með sér að strákarnir eru síst búnir að fá nóg eftir ævintýri sumarsins í Frakklandi og ætla sér beinustu leið til Rússlands.

Aðaláhyggjuefni margra fyrir leikinn í gær var fjarvera fyrirliðans Arons Einars Gunnarssonar, sem var í banni, og tilheyrandi tilfærslur innan liðsins. En þær áhyggjur reyndust ástæðulausar – Birkir Bjarnason leysti miðjuhlutverkið með miklum sóma og Theódór Elmar Bjarnason kom inn á kantinn af miklum krafti. Raunar áttu allir leikmenn Íslands góðan dag.

Færin á færibandi

Íslenska liðið spilaði af miklum krafti frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu. Einbeitingarleysið sem mátti sjá á liðinu í leiknum gegn Finnlandi á fimmtudag var hvergi að sjá í þetta skiptið. Tyrkir fengu lítinn sem engan tíma á boltann, náðu ekki að skapa sér færi á löngum köflum á meðan íslenska liðið var yfirvegunin uppmáluð og náði margsinnis að byggja upp fallegar sóknir.

Færin komu hvert á eftir öðru og með réttu hefði Ísland átt að vera komið 2-0 yfir eftir stundarfjórðung. Kári Árnason og Alfreð Finnbogason nýttu ekki góð færi en það var það eina sem vantaði upp á magnaða frammistöðu framan af leik. Ísland var einfaldlega með yfirhöndina, hvert sem var litið á vellinum.

Elja og dugnaður upp á tíu

Þó svo að fyrra mark Íslands hafi verið sjálfsmark var uppspil íslenska liðsins, með þá Gylfa Þór og Jóhann Berg í fararbroddi, stórglæsilegt og verðskuldaði mark. Stuttu síðar kom Alfreð Íslandi í 2-0 forystu eftir ótrúlega stoðsendingu Kára Árnasonar, sem skallaði boltann af eigin vallarhelmingi inn fyrir varnarlínu Tyrkja.

Síðari hálfleikur var ekki jafn opinn, þó svo að Alfreð hafi klúðrað dauðafæri snemma í honum, en Tyrkir komust aldrei nálægt því að ógna forystu Íslands. Eljan og dugnaðurinn hjá strákunum okkar var upp á tíu og þeir sáu til þess að Ísland hélt í fyrsta sinn marki sínu hreinu í mótsleik síðan að Íslendingar tryggðu sér sætið á EM með markalausu jafntefli við Kasakstan.

Ísland óttast engan

Næsti leikur Íslands í riðlinum verður sennilega sá erfiðasti, gegn Króatíu ytra. En strákarnir sendu sterk skilaboð með frammistöðunni í gær og með réttu ættu þeir ekki að óttast neitt lið. Slík eru gæðin í íslenska liðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×