Fótbolti

Tvö sjálfsmörk þegar Arsenal og PSG skildu jöfn | Sjáðu mörkin

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Arsenal og Paris Saint-Germain skildu jöfn, 2-2, þegar liðin mættust á Emirates vellinum í A-riðli Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Liðin eru áfram jöfn að stigum (11) á toppi riðilsins.

Frönsku meistararnir voru mun sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og Edinson Cavani kom þeim yfir á 18. mínútu þegar hann skoraði af stuttu færi eftir sendingu Blaise Matuidi.

Oliver Giroud jafnaði metin í uppbótartíma fyrri hálfleiks úr vítaspyrnu sem Alexis Sánchez náði í.

Arsenal byrjaði seinni hálfleikinn betur en Lucas Moura var nálægt því að koma PSG öðru sinni yfir þegar hann skaut í slá beint úr aukaspyrnu á 54. mínútu.

Fimm mínútum síðar varð ítalski miðjumaðurinn Marco Verratti fyrir því óláni að skora sjálfsmark og Arsenal komið yfir, 2-1.

Á 77. mínútu kom svo annað sjálfsmark. Það gerði Alex Iwobi þegar hann reyndi að bjarga því að skalli Lucas færi á mark Arsenal. Lokatölur 2-2 í hörkuleik.

Arsenal 0-1 PSG Arsenal 1-1 PSG Arsenal 2-1 PSG Arsenal 2-2 PSG



Fleiri fréttir

Sjá meira


×