Menning

Tveir útlagar hertaka svið Gamla bíós

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
"Það er gott að koma í borgina og heiður að fá að sýna í Gamla bíói,“ segir Elfar Logi.
"Það er gott að koma í borgina og heiður að fá að sýna í Gamla bíói,“ segir Elfar Logi. Fréttablaðið/Valli
„Ég er bara kominn í 101,“ segir Vestfirðingurinn Elfar Logi Hannesson, leikari hjá Kómedíuleikhúsinu, sem sýnir á fjölum Gamla bíós næstu vikur.

„Ég verð með sjö sýningar á Gísla Súrssyni á ensku fram að 15. júní og sú fyrsta er í kvöld. Það leggst vel í mig, gott að koma í borgina og heiður að fá að sýna í þessu frábæra húsi,“ segir leikarinn.

Elfar Logi kveðst vera upptekinn af útlögum og því hafi hann sett upp sýningu um Fjalla-Eyvind sem frumsýnd hafi verið í lok síðasta árs.

Ákveðið hafi verið að steypa henni og sýningunni um Gísla Súrsson saman í Gamla bíói og þá verði leikið á íslensku. Fyrsta sýning er annað kvöld. Hvor þáttur um sig er 55 mínútur og gert er stutt hlé á milli til að gefa gestum kost á að standa upp og fá sér hressingu.

Gísli Súrsson var frumsýndur árið 2005 og sýningin í kvöld er númer 264.

„Það var kominn tími á að kíkja með Gísla til höfuðborgarinnar því kappinn hefur aðallega haldið sig á landsbyggðinni til þessa,“ segir Elfar Logi og upplýsir að hingað til hafi hann einungis sýnt hér syðra fyrir ákveðna hópa en ekki almenning.

„Samtímis og langt fram í ágúst verð ég líka með Gísla vestur í Haukadal í Dalasýslu, ýmist á íslensku eða ensku. Þar tók Gísli Súrsson land og það er sérstök upplifun að sýna hann á söguslóðum,“ segir Elfar Logi sem fer á nútíma reiðskjóta milli héraða.

Frekari upplýsingar má finna hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×