Lífið

Tveir Íslendingar á lista yfir heitustu Tinder gaurana

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Tinder prófílar vinanna Sverris og Þorsteins
Tinder prófílar vinanna Sverris og Þorsteins
Tveir Íslendingar, Sverrir Ingi Óskarsson og Þorsteinn Halldór Þorsteinsson, eru á lista Elle yfir 20 heitustu gaurana sem hægt er að finna um veröldina á Tinder.

„Síminn hefur eiginlega ekki stoppað síðan þetta birtist,“ segir Sverrir Ingi. „Það var búið að hafa samband við mig og spyrja hvort þau mættu nota þetta og ég svaraði því játandi.“

Það sem gerir þetta nokkuð skondið er að Sverrir og Þorsteinn eru æskuvinir og símanúmer þeirra eru til að mynda nánast eins. Þeir vissu ekki af hvor öðrum á listanum.

„Annars er ég hættur að nota appið. Ég er með það í símanum en nota það allavega ekki lengur í þeim tilgangi sem það var skapað,“ segir Sverrir.

Tinder fínasta dægradvöl

Þorsteinn, sem er að læra kokkinn, hefur sömu sögu að segja. Eftir að greinin birtist hefur hann vart haft undan að svara fólki og Facebook hefur nánast logað.

„Ég matchaði þessa Ashley Terrill sem skrifaði greinina fyrir einhverjum mánuðum og við vorum búin að spjalla svolítið saman. Allt í einu spurði hún mig hvort hún mætti nota prófílinn minn í greinina og ég leyfði það,“ segir Þorsteinn.

Ashley þessi virðist hafa fengið að prófa beta útgáfu af þeirri útgáfu Tinder sem nú er komin í loftið. Nýja týpan gerir notendum kleyft að swipe-a fólk hvaðanæva úr heiminum.

„Ég hef verið á Tinder í einhverja mánuði eða síðan vinur minn benti mér á þetta. Mér finnst þetta ágæt dægradvöl, ég er nánast hættur á Facebook og nota þetta til að drepa tímann. Skoða þetta til að mynda frekar en Moggann eða slíkt,“ segir Þorsteinn.


Tengdar fréttir

Breytinga að vænta á Tinder

Notendur stefnumótaforritsins Tinder munu á næstunni geta borgað fyrir uppfærða útgáfu af forritinu sem mun bjóða upp á ýmsa nýja möguleika.

Ár rassa og samfélagsmiðla

Söngkonan Salka Sól Eyfeld og ritstjóri Nútímans Atli Fannar Bjarkason fara yfir það minnisstæðasta í dægurmálum á árinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×