Bíó og sjónvarp

Tuttugu myndir eiga möguleika

Teiknimyndin Big Hero 6 verður frumsýnd vestanhafs um helgina.
Teiknimyndin Big Hero 6 verður frumsýnd vestanhafs um helgina.
Lego Movie Gæti hlotið Óskarsverðlaunin á næsta ári.
Óskarsakademían hefur tilkynnt um tuttugu teiknimyndir sem koma til greina þegar Óskarsverðlaunin verða afhent í 87. sinn á næsta ári.

Myndirnar eru eftirtaldar: Big Hero 6, The Book of Life, The Boxtrolls, Cheatin, Giovanni's Island, Henry and Me, The Hero of Color City, How to Train Your Dragon 2, Jack and the Cuckoo-Clock Heart, Legends of Oz: Dorothy's Return, The Lego Movie, Minuscule – Valley of the Lost Ants, Mr. Peabody and Sherman, Penguins of Madagascar, The Pirate Fairy, Planes: Fire and Rescue, Rio 2, Rocks in My Pockets, Song of the Sea og The Tale of the Princess Kaguya.

Tilkynnt var um nítján teiknimyndir í fyrra. Samkvæmt reglum Óskarsakademíunnar verða þrjár teiknimyndir tilnefndar til verðlaunanna ef átta myndir koma til greina í byrjun en fimm tilnefndar ef sextán eða fleiri koma til greina, að því er Variety greindi frá.

Tilkynnt verður um þær fimm teiknimyndir sem verða tilnefndar til Óskarsins 15. janúar, á sama tíma og tilkynnt verður um aðrar Óskarstilnefningar.

Þrjár teiknimyndir hafa fengið mesta aðsókn á þessu ári, eða How to Train Your Dragon 2, Rio 2 og The Lego Movie. Samanlagt hafa þær halað inn 1,5 milljarða Bandaríkjadala í miðasölunni á heimsvísu, eða rúma 180 milljarða króna. Margir binda einnig miklar vonir við Big Hero 6 sem verður frumsýnd vestanhafs um helgina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×