Íslenski boltinn

Tugir milljóna undir hjá FH gegn Dundalk í Krikanum í kvöld

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Þórarinn Ingi Valdimarsson í baráttunni í fyrri leik FH og Dundalk.
Þórarinn Ingi Valdimarsson í baráttunni í fyrri leik FH og Dundalk. vísir/ryan
FH mætir írska liðinu Dundalk í seinni leik liðanna í annarri umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu á Kaplakrikavelli klukkan 19.15 í kvöld.

Íslandsmeistararnir eru í fínni stöðu í einvíginu eftir 1-1 jafntefli ytra þar sem Steven Lennon, Skotinn í framlínu FH, skoraði jöfnunarmark gegn sínum gömlu félögum.

Komist FH í gegnum Írana í kvöld bíður þeirra tveggja leikja viðureign gegn BATE Borisov frá Hvíta-Rússlandi sem þrisvar sinnum hefur komið áður hér til lands og unnið FH tvívegis og Val einu sinni.

Eins og alltaf í Meistaradeildinni eru gríðarlegar fjárhæðir í spilinu fyrir íslensku liðin og leikurinn í kvöld er engin undantekning fyrir FH-inga. Með því að afgreiða Írana í kvöld er liðið búið að tryggja sér tvö einvígi í viðbót í Evrópu sem skilar Íslandsmeisturunum að lágmarki 85 milljónum til viðbótar í kassann.

FH fær 300 þúsund evrur eða 40 milljónir króna fyrir einvígið gegn Dundalk og það verður heildarupphæðin tapi liðið í kvöld. Aftur á móti, ef það kemst áfram, borgar UEFA liðunum í þriðju umferð forkeppni Meistaradeildarinnar 400 þúsund evrur eða 54 milljónir króna.

Þó svo FH takist ekki að leggja BATE að velli fer það samt sem áður í umspil um sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar en fyrir það fær Hafnafjarðarliðið 230 þúsund evrur eða 31 milljón króna.

Heildarverðlaunafé FH fyrir að komast áfram í kvöld verður því að minnsta kosti 125 milljónir króna þegar 85 milljónirnar fyrir næstu tvö einvígi bætast við þær 40 sem liðið er nú þegar öruggt með fyrir leikina gegn Dundalk.

Leikur FH og Dundalk verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD klukkan 19.00 í kvöld.


Tengdar fréttir

Hvít-Rússarnir bíða FH-inga slái FH Dundalk út á morgun

Hvít-rússneska liðið BATE Borisov tryggði sér í kvöld sæti í þriðju umferð forkeppni Meistaradeildarinnar en liðið mætir þar sigurvegaranum úr viðureign Íslandsmeistara FH og Dundalk sem fer fram á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×