Innlent

Trúnaðarmaður hjá Actavis: „Áfall fyrir alla starfsmenn fyrirtækisins“

Linda Blöndal skrifar
Þrjú hundruð störf verða flutt úr landi þegar lyfjaframleiðslu Actavis á Íslandi verður hætt eftir tvö ár. Starfsfólki fyrirtækisins var tilkynnt um þetta í morgun. Forstjóri Allergan, móðurfélags fyrirtækisins, segir að framleiðslan hafi ekki verið nægilega hagkvæm. Hlín Guðjónsdóttir, trúnaðarmaður VR félaga hjá Actavis, segir fréttirnar koma illa við alla starfsmenn fyrirtækisins.

Önnur starfsemi Actavis verður áfram hér á landi, svo sem lyfjaþróun, skráning og viðhald markaðsleyfa og alþjóðagæðasvið. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að við það starfi um fjögur hundruð manns hjá fyrirtækinu. 

Framleiðir ekki nóg

Lokunin er til hagræðingar þar sem aðrar verksmiðjur fyrirtækisins eru taldar geta tekið við framleiðslu á þeim lyfjum sem í dag eru framleidd hér á landi. Robert Stewart, forstjóri samheitalyfjasviðs og alþjóðaframleiðslu Allergan, móðurfélags Actavis, segir framleiðsluna hér á landi ekki nægilega mikla til að standast kröfur í dag. Stewart var staddur hér á landi til að tilkynna lokunina fyrir starfsfólki. Hann sagði framleiðsluna hér of dýra núorðið miðað við það magn sem er framleitt.

Erfið ákvörðun

„Þetta er viðleitni hjá okkur til að hagræða í framboðslínum okkar á heimsvísu. Það er mikið álag á okkur hvað varðar kostnað á sviði heilsuverndar og við erum að leita leiða til að hámarka framleiðslugetu okkar. Því tókum við þá erfiðu ákvörðun að loka framleiðslustöð okkar og sameina framleiðsluna öðrum verksmiðjum annars staðar,” sagði Stewart í frétt Stöðvar tvö í kvöld. 

„Við munum halda áfram að stunda rannsóknir og þróun, skráningar- og eftirlitsstarfsemi og aðra stoðþjónustu hér á landi en því miður, hvað varðar framleiðslustöðina, var framleiðslugetan ekki næg til að vera samkeppnishæf í þessu umhverfi,“ segir Stewart.

Um hagræðingaraðgerð er að ræða.
Hann segir að starfsfólkinu verði boðin aðstoð við að finna sér aðra atvinnu með ráðgjöf og fleiru. Þeir sem starfi fram til loka 2017 verði umbunað. Hvað felst í því er þó enn mjög óljóst.

Eins og þruma úr heiðskíru lofti

Hlín Guðjónsdóttir, trúnaðarmaður VR félaga hjá Actavis, sem starfar við lyfjaskráningu, heldur sjálf sínu starfi. Hún segir að tilkynningin hafi komið eins og þruma úr heiðskíru lofti en engin teikn voru á lofti um að loka ætti lyfjaverksmiðjunni í dag.

„Maður átti ekki von á því að mæta á mánudagsmorgni til vinnu og vera kallaður á fund. Ég sem trúnaðarmaður var kölluð á fund áður en öllum öðrum var tilkynnt þetta. Ég var svo meðal hinna þegar allir fengu tíðindin á stærri fundi klukkan tíu í morgun. Þetta var auðvitað mikið sjokk,” sagði Hlín í fréttum Stöðvar tvö í kvöld.

Lofað að ekki yrðu fleiri lokanir

Hlín segir lokunina hafa áhrif á alla, líka þá sem verða eftir hér á landi.

„Það tekur þessu auðvitað enginn vel. Þetta er náttúrulega bara áfall fyrir alla starfsmenn fyrirtækisins í heild,“ segir hún. Hún segir að lofað hefði verið á fundinum að fleiri einingum verði ekki lokað hér á landi.

„Ég geri ekki ráð fyrir því eins og staðan er í dag. Það var tekið sérstaklega fram í dag.”


Tengdar fréttir

300 störf hjá Actavis flutt frá Íslandi

Robert Stewart, forstjóri samheitalyfjasviðs og alþjóðaframleiðslu samstæðunnar, segir í fréttatilkynningu að ákvörðunin endurspegli ekki frammistöðu starfsmanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×