Skoðun

Tromp Norðmanna í orkumálum?

Jóhann Helgason skrifar
Ríkir eru Norðmenn en olían, sem færði þeim auðinn, mun ekki endast að eilífu. Núverandi spár segja að eftir 53 ár horfi þeir fram á olíuþurrð. Hvað tekur þá við? Ekki er víst að allir Norðmenn hafi af því áhyggjur því þeir kunna að eiga val, þ.e. kjarnorku eða notkun þóríns til orkuframleiðslu.

Kjarnorkuver nota úran en unnið er að beislun þóríns í sama tilgangi, sem telst nær hættulaust samanborið við úran. Norðmenn eru einna lengst komnir í orkurannsóknum á þórín (e. thorium). Þeir eru engir nýgræðingar þegar kemur að þórín því frumefnið fannst fyrst í Noregi 1828. Norðmenn hafa lengi rannsakað geislavirkni í Halden við Ósló og búa yfir mikilli þekkingu á því sviði. Sérstaða þeirra er að geta fjármagnað rannsóknir sem nauðsynlegar eru til að hanna þórín kjarnorkuver og hefur ríkið þegar veitt fé til rannsókna á þessu sviði, sem norsk fyrirtæki eru þó í forsvari fyrir (Thor Energy AS).

Til að ná skjótum árangri á sviði þórínorkuvinnslu væri æskilegt að mörg lönd legðu í púkkið en sú hefur ekki verið raunin. Evrópusambandið hefur veðjað á aðra kosti sem hafa verið fjármagnaðir í mörg ár, þ.e. rannsókn á kjarnasamruna. Lönd sem þróa aðferðir til þórínorkuvinnslu eru auk Noregs: Frakkland, Japan, Indland, Kanada, Bandaríkin og Kína. Yfirleitt standa bæði yfirvöld og fyriræki að þórínrannsóknum en Kína hefur þó sérstöðu því þar ríkir eins konar „stríðsástand“, líkast kapphlaupinu á milli Bandaríkjanna og Sovétríkjanna um að verða fyrstir til að senda mann til tunglsins.

Skipta um orkugjafa

Innan 10 ára ætla Kínverjar, með vísindalegan mannauð, nægt fjármagn og fullan pólitískan stuðning yfirvalda að vopni, að gangsetja fyrsta þórínorkuverið. Óvíst er hvort það tekst en þeir hyggjast leysa vandamálið um útblástur gróðurhúsalofttegunda með því að skipta um orkugjafa. Þetta er eðlilegt því vandamálið snýst um orku, ekki loftslag. Orkuvinnslan er orsök þess að vandamálið mengun andrúmsloftsins er til staðar. Takist Kínverjum ætlunarverk sitt má ætla að aðrar þjóðir njóti góðs af tæknilausnum þeirra. Þau lönd, eða réttara sagt fyrirtæki, sem nú hafa áttað sig á þessu, verða best í stakk búin ef Kínverjar ná markmiði sínu. Þeirra á meðal eru Norðmenn sem gætu því hætt að nota olíu löngu áður en sú orkulind tæmist.

Fjárfestar hafa að undanförnu leitað í vinnslu og rannsóknir annarra orkugjafa en olíu, kola og gass, sem eykur líkurnar á að þórínorkuframleiðsla líti dagsins ljós. Viðskiptasjónarmið ráða ferðinni, ekki hagsmunir almennings. Þeir sem kynna sér kosti þórínorkuvinnslu eru yfirleitt á þeirri skoðun að þessa leið beri að fara. Þeirra á meðal eru hinn áhrifamikli Bill Gates, en einnig Hans Blix, fyrrum eftirlitsmaður Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar. Norðmenn eru heppnir að eiga 4% alls þóríns á yfirborði jarðar og búa við kjöraðstæður, þ.e. pólitíska framsýni, fjármagn til rannsókna og vísindamenn til að vinna verkið. Þótt aðrir orkugjafar en kjarnorka munu vafalítið verða beislaðir á næstu áratugum, munar mest um kjarnorkuna. Fátt virðist geta stöðvað það ferli.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×