Fótbolti

Trifon Ivanov látinn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Goðsögnin Trifon Ivanov var aðeins 50 ára.
Goðsögnin Trifon Ivanov var aðeins 50 ára. vísir
Búlgarska goðsögnin Trifon Ivanov er látinn, aðeins fimmtugur að aldri. Banameinið var krabbamein.

Ivanov lék 76 landsleiki fyrir Búlgaríu og þar á meðal á HM í Bandaríkjunum árið 1994 þar sem liðið hafnaði í fjórða sæti, EM í Englandi 1996 og HM í Frakklandi árið 1998.

Þessi magnaði varnarmaður lék með CSKA Sofia, Real Betis og Rapid Vienna á sínum ferli.

„Trifons Ivanov verður ávallt minnst sem eins besta knattspyrnumanns í sögu Búlgaríu,“ segir í yfirlýsingu frá búlgarska knattspyrnusambandinu. 

Að neðan má sjá myndband með tilþrifum Ivanov sem þótti harður í horn að taka




Fleiri fréttir

Sjá meira


×