Fótbolti

Torres: Erum til í að slást við hvaða lið sem er

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Gleðin skein af framherjanum Fernando Torres eftir að Atletico Madrid tryggði sér farseðilinn í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í kvöld.

„Þetta var spennuþrunginn leikur. Ég er svo stoltur af þessu liði og þetta er fyllilega verðskuldað. Við erum búin að leggja nokkur af bestu liðum Evrópu og erum nú einu skrefi frá stóra drauminum,“ sagði Torres.

Bayern vann leikinn 2-1 í kvöld en Atletico kemst í úrslit á útivallarmarkinu.

„Það getur verið erfitt að spila eins og maður vill er andstæðingurinn er ofurlið eins og Bayern. Þeir spila svo hratt og við vorum í vandræðum í fyrri hálfleik.

„Við náðum aðeins að aðlaga okkar leik í seinni hálfleik og ná í markið sem vantaði,“ segir Torres sem er bjartsýnn fyrir úrslitaleikinn.

„Við viljum vinna og skrá okkur á nýjan hátt í sögubækurnar hjá Atletico. Það skiptir ekki máli hvaða liði við mætum í úrslitum. Við erum til í að slást við hvaða lið sem er.“

Annað kvöld kemur í ljós hvort það verður Real Madrid eða Man. City sem mætir Atletico í úrslitaleiknum í Mílanó.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×