Sport

Tom Brady aftur í fjögurra leikja bann en sparar sér mikinn pening

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tom Brady
Tom Brady Vísir/Getty
Fjögurra leikja bann Tom Brady er nú aftur í gildi eftir Áfrýjunardómstóll úrskurðaði að NFL hafði rétt fyrir sér með því að dæma leikstjórnanda New England Patriots í bann fyrir þátttöku hans í „Deflategate".

Tom Brady missir því af fyrstu fjórum leikjum New England Patriots á komandi tímabili sem hefst í september. Tom Brady er þó ekki búinn að gefast upp og mun áfrýja dómnum til hæstaréttar sem mun eiga lokaorðið í þessu máli. Það þykir þó ólíklegt að Brady sleppi við bannið. ESPN segir frá.

Roger Goodell, yfirmaður NFL, dæmdi Tom Brady í fjögurra leikja bann fyrir vitneskju hans og þátttöku í stóra boltamálinu þegar Patriots-liðið braut reglur með því að taka loft úr keppnisboltum fyrir leik í úrslitakeppninni 2015.

Tom Brady fór með málið fyrir dómstóla og vann fyrstu hrinuna sem hjálpaði honum að spila alla leiki liðsins á síðasta tímabili. Brady missir hinsvegar af leikjum á móti Arizona Cardinals, Miami Dolphins, Houston Texans og Buffalo Bills í haust. Fyrsti leikur Brady á tímabilinu verður á móti Cleveland Browns.

Tom Brady græddi mikinn pening án því að taka bannið frekar út í ár en í fyrra því nýr samningur hans við New England Patriots er mjög hagstæður þegar kemur að þessu „nýja“ banni.

Brady má ekki bara spila þessa fjóra leiki heldur missir hann einnig launin sín á þessum tíma. Brady gerði nýjan samning í síðasta mánuði þar sem hann fær aðeins eina milljón dollara í laun fyrir næsta tímabil en ekki níu milljónir dollara eins og hann átti að fá.

Þess í stað fékk Brady 28 milljónir dollara bónusgreiðslu fyrir að gera nýjan samning og það fer ekkert framhjá neinum að nýr samningur var mótaður að þessari refsingu sem er framundan.

Brady hefði misst rúmar tvær milljónir dollara, um 250 milljónir íslenskra króna, samkvæmt gamla samningnum sínum en nýi samningurinn sér til þess að hann missir aðeins 235 þúsund dollara eða um 29 milljónir íslenskar krónur.

Þarna munar meira en 220 milljónum íslenska króna sem sitja eftir í vasa Tom Brady og það er nú þokkalegasta upphæð.

NFL

Tengdar fréttir

Brady selur flestar treyjur

Vinsældir leikstjórnanda New England Patriots, Tom Brady, eru miklar og þær sjást best í treyjusölu.

Tom Brady byrjar titilvörnina í fjögurra leikja banni

Tom Brady, leikstjórnandi NFL-meistara New England Patriots, var í gær dæmdur í fjögurra leikja bann vegna vitneskju hans og þáttöku í stóra boltamálinu þegar Patriots-liðið braut reglur með því að taka loft úr keppnisboltum fyrir leik í úrslitakeppninni á síðasta tímabili.

Fjögurra leikja banni Tom Brady aflétt

Dómari úrskurðaði í dag að leikbann Tom Brady væri ekki byggt á lögmætum forsendum og þurrkaði úr fjögurra leikja bann hans. Getur hann því tekið þátt í fyrsta leik liðsins gegn Pittsburg Steelers eftir viku.

Brady: Peyton fullkomnaði fótboltann

Eitt stærsta íþróttaeinvígi aldarinnar hefur verið á milli leikstjórnendanna Peyton Manning og Tom Brady. Tveir af þeim bestu til að spila í NFL-deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×