Innlent

Tölvur gerðar upptækar: Tók nektarmyndir af útigangskonum

Erla Hlynsdóttir skrifar
Kynferðirbrotadeild lögreglunnar hefur gert upptækar tvær tölvur í eigu karlmanns sem tekið hefur grófar nektarmyndir af útigangskonum og sett á Netið. Lögreglan telur að sumar konurnar hafi ekkert vitað af myndatökunum.

Ekki er vitað hversu margar konur maðurinn tók myndir og myndbönd af en það er meðal þess sem lögreglurannsóknin lýtur að. Málið er rannsakað sem blygðunarsemisbrot sem er refsivert samkvæmt hegningarlögum, en „Hver sá sem með lostugu athæfi særir blygðunarsemi manna ... skal sæta fangelsi allt að fjórum árum ... "

Maðurinn, sem er á sextugsaldri, var tilkynntur til lögreglu fyrr í þessum mánuði eftir að hann birti nektarmyndir af minnst þremur bágstöddum konum á Facebook-síðu sinni. Um svipað leyti hafði hann fengið konu heim til sín sem neitaði af afklæðast, og hafði hún einnig samband við lögregluna.

Svo virðist sem maðurinn nýti sér neyð kvenna sem eru á vergangi, bjóði þeim til sín þar sem hann láti þær afklæðast og taki af þeim myndir.

Á einu myndbandinu sést kona sem liggur nakin og virðist sofandi, og telur lögregla að sumar konurnar hvorki viti af myndatökunni né hafi gefið leyfi fyrir henni, hvað þá að myndirnar hafi verið settar á netið.

Manninum var sleppt eftir skýrslutöku hjá lögreglu og er reiknað með því að það taki nokkrar vikur að fara yfir efnið á tölvunum hans..

Samkvæmt upplýsingum frá kynferðisbrotadeild lögreglunnar verður reynt að hafa uppi á konunum og fá þannig gleggri mynd af atburðarrásinni. Þá útilokar lögregla ekki að maðurinn hafi brotið frekar gegn konunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×