Bíó og sjónvarp

Tökum lauk á Kanaríeyjum

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Myndir/úr einkasafni
Tökum á íslensku kvikmyndinni Afanum er lokið en myndin verður frumsýnd hér á landi í september næstkomandi.

Það vantaði ekki stuðið síðustu tökudagana en þá var tekið upp á Kanaríeyjum. Sigurður Sigurjónsson leikur afann en myndin er byggð á samnefndum einleik sem Bjarni Haukur Þórsson skrifaði.

Bjarni skrifaði einnig kvikmyndahandritið ásamt leikaranum Ólafi Egilssyni. Þeir þrír brugðu sér allir til Kanaríeyja ásamt leikkonunni Esther Taliu, Steinda Jr., sem leikur tilvonandi tengdason Sigurðar í myndinni, og leikkonunni Sigrúnu Eddu Björnsdóttur.

Sigurður, Sigrún Edda og Bjarni Haukur.
Stuð í sólinni.
Eitthvað verður um golf í myndinni.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×