Lífið

Tóku Villa Vill slagara og flugu í úrslitaþáttinn

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Magnús og Ívar höfðu ærna ástæðu til að fagna í kvöld.
Magnús og Ívar höfðu ærna ástæðu til að fagna í kvöld. Vísir/Andri Marinó
Magnús Hafdal, 26 ára frá Reykjavík, og Ívar Þórir Daníelsson, 28 ára Seltirningur, tryggðu sér sæti í úrslitum Ísland got Talent í kvöld.

Þeir félagar fluttu lagið Þú átt mig ein með Vilhjálmi Vilhjálmssyni við mikinn fögnuð áhorfenda. Fór svo að þeir báru sigur úr býtum í símakosningu og tryggðu sér þannig úrslitasæti.

Atriði þeirra Ívars og Magnúsar má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×