Lífið

Tina Dickow: Smitast af íslenska þjóðarstoltinu

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Tina DIckow með Fréttablað dagsins.
Tina DIckow með Fréttablað dagsins. Vísir/Helgi Jónsson
Danska poppstjarnan Tina Dickow deildi á Fésbókarsíðu sinni í morgun stoltræðu um íslenska fótboltalandsliðið. Tina er fræg í Danmörku og víðar en hún býr hér á Íslandi ásamt eiginmanni sínum og barni. Þar sem hún er ekki eins þekkt hér fær hún eflaust þann frið sem hún þráir á götum úti.

Í færslu sinni grínast Tina með hvernig það megi vera að 320 þúsund manna samfélag sé að ná svona langt á EM í fótbolta.

„Ef maður fjarlægir konur frá 320 þúsund manna samfélagi, svo alla menn undir 18 ára og yfir 35 ára, fjarlægir þá sem eru í yfirvigt, blinda, einfættir, bankamenn sem sitja í fangelsi eftir hrunið, sjómenn (þar sem þeir eru allir að fiska núna), unglingalandsliðið, nuddara og þjálfarana þá eru BARA 23 menn eftir. Þeir standa sig fjandi vel þessir 23 menn!,“ segir Tina á Fésbókar síðu sinni.

Helgi jafnar sig eftir hjartaaðgerð

Meðfylgjandi er mynd þar sem hún heldur á Fréttablaðinu í morgun sem skartaði í fyrsta skiptið forsíðumynd á báðum hliðum. Það er ljóst að danska poppstjarnan er að smitast af íslenska þjóðarstoltinu.

Tina er gift Helga Hrafni Jónssyni en þau hafa verið samstarfsmenn í tónlistinni til margra ára. Saman búa þau á Seltjarnarnesi en Helgi gekkst nýverið undir bráðahjartaaðgerð sem hann jafnar sig nú á.

„Það er frábært að sjá áhuga umheimsins og ekki síst Danmerkur á íslenska liðinu. Kannski ekki besta sjónvarpið eftir hjartaaðgerð en við njótum hverrar sekúndu og búumst við að slá út Frakkland á sunnudag!“.

Tina Dickow kemur fram á Bræðslunni í ár sem fer fram á Borgarfirði Eystri um miðjan næsta mánuð.

Hér fyrir neðan má sjá myndband við lagið Someone You Love.


Tengdar fréttir

Miðasalan á Bræðsluna hefst á morgun

Miðasala á Bræðsluna hefst á morgnu klukkan kl. 10:00 á www.braedslan.is og á www.tix.is. Bræðslutónleikarnir fara svo fram laugardaginn 23. júlí. Mjög takmarkaður fjöldi miða er í boði og þeim verður ekki fjölgað.

Helgi Hrafn Bæjarlistamaður Seltjarnarness

Helgi Hrafn Jónsson tónlistarmaður var í dag útnefndur Bæjarlistamaður Seltjarnarness 2015. Hann ánafnar verðlaunafénu til Tónlistarskóla Seltjarnarness.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×