Enski boltinn

Tímabilið búið hjá Rangel

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Swansea urðu fyrir áfalli í dag er í ljós kom að varnarmaðurinn Angel Rangel spilar ekki meira á tímabilinu.

Rangel meiddist á ristinni í leiknum gegn Hull um nýliðna helgi. Hann verður frá í átta til tólf vikur og fer í aðgerð í vikunni.

Það er ekki beint um auðugan garð að gresja í öflugum varnarmönnum hjá Swansea en liðið hefur fengið langflest mörk á sig í deildinni.

Swansea er í erfiðri fallbaráttu og markahæsti leikmaður liðsins, Fernando Llorente, meiddist líka gegn Hull en ætti samt að ná næsta leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×