Fótbolti

Þurfum að hafa fyrir hlutunum gegn Ajax

Neymar og Messi eru hér í stuði.
Neymar og Messi eru hér í stuði. vísir/getty
Brasilíumaðurinn Neymar segir að það sé nauðsynlegt fyrir Barcelona að ná góðum úrslitum gegn Ajax á morgun til þess að koma rétt stemmdir í leikinn gegn Real Madrid um næstu helgi.

„Leikurinn gegn Ajax er leikur sem við verðum að vinna. Svo getum við farið að hugsa um Real Madrid af alvöru," sagði Neymar sem hefur farið vel af stað í vetur.

„Menn spyrja mig hvort sé mikilvægara að skora gegn Ajax eða Real Madrid. Ég svara því þannig að það sé jafnmikilvægt. Leikurinn gegn Ajax verður mjög erfiður og við munum þurfa að hafa fyrir hlutunum."

Neymar segist njóta þess sem fyrr að spila með Lionel Messi en bíður líka spenntur eftir því að fá Luis Suarez inn í liðið.

„Messi er besti leikmaður heims og það er gaman að spila með honum. Suarez er líka á meðal þeirra bestu og ég er viss um að hann mun koma með margt jákvætt í lið okkar."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×