Þrjú nálgunarbönn gegn konu sinni á innan við ári Bjarki Ármannsson skrifar 8. mars 2016 22:25 Þetta er í þriðja sinn sem manninum er gert að sæta nálgunarbanni. Vísir/Getty
Hæstiréttur hefur úrskurðað karlmann í fjögurra mánaða nálgunarbann gagnvart eiginkonu sinni og börnum tveimur. Þetta er í þriðja sinn sem manninum er gert að sæta nálgunarbanni auk þess sem hann skrifaði í síðasta mánuði undir yfirlýsingu þar sem hann skuldbindur sig til þess að koma ekki á heimili konunnar eða setja sig í samband við hana. Manninum var tvisvar gert að sæta nálgunarbanni gagnvart fjölskyldu sinni í fyrra vegna gruns um ítrekað ofbeldi gegn konunni, sem börn þeirra urðu vitni að. Lýsti konan því þá við skýrslutöku að maðurinn hefði meðal annars kýlt hana ítrekað í andlitið og sparkað í hana.Að því er segir í úrskurðinum, lýsti konan í skýrslutöku hjá lögreglu í ágúst síðastliðnum yfir einlægum vilja til þess að fella nálgunarbannið úr gildi. Henni þætti hegðun mannsins hafa breyst og afstaða hans til barnanna batnað auk þess sem hún teldi sjálfa sig sterkari eftir að hafa leitað sér aðstoðar. Málið rataði þó aftur á borð lögreglu í síðasta mánuði þegar konan greindi frá hótunum og áreiti af hálfu mannsins. Maðurinn neitaði ásökununum en honum var þá samt sem áður gert að undirrita fyrrnefnda yfirlýsingu. Í úrskurði Hæstaréttar segir að gögn málsins bendi til að maðurinn hafi verið fyrir utan heimili konunnar eftir að hann skrifaði undir yfirlýsinguna og margsinnis hringt í og sent dóttur þeirra skilaboð símleiðis. Hæstiréttur sneri við úrskurði Héraðsdóms Suðurlands, sem hafði hafnað kröfu Lögreglustjórans á Suðurlandi um nálgunarbann.
Tengdar fréttir Fimm mánaða nálgunarbann: Börn og vinir þeirra vitni að ofbeldinu Karlmaður hefur verið dæmdur í fimm mánaða nálgunarbann vegna ofbeldis í garð eiginkonu sinnar til tíu ára. 28. júlí 2015 13:33 Nálgunarbann stytt úr sex mánuðum í fjórar vikur Grunaður um að beita eiginkonu sína ofbeldi fyrir framan börn þeirra. 25. júní 2015 15:28 Mest lesið Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Erlent Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Innlent Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Innlent Fleiri fréttir Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Forsetaslagurinn, leit að eiganda fjármuna og rjómablíða Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Útlagar spreyjaðir gylltir Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Sinueldur í Reykjanesbæ Pétur Einarsson leikari látinn Kólnar á öllu landinu eftir óvenjugóðan fyrsta sumardag „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur Seltjarnarnesbær gengur frá sölu á Safnatröð Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Sjá meira
Fimm mánaða nálgunarbann: Börn og vinir þeirra vitni að ofbeldinu Karlmaður hefur verið dæmdur í fimm mánaða nálgunarbann vegna ofbeldis í garð eiginkonu sinnar til tíu ára. 28. júlí 2015 13:33
Nálgunarbann stytt úr sex mánuðum í fjórar vikur Grunaður um að beita eiginkonu sína ofbeldi fyrir framan börn þeirra. 25. júní 2015 15:28