Innlent

Þrír fengu gistingu hjá lögreglunni á Akureyri en enginn í Reykjavík

Vísir/Pjetur
Þrír karlmenn gistu fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, sem þykir tíðundum sækja þar í bæ í upphafi viku. Þeir voru allir teknir úr umferð vegna ölvunar og óspekta.

Þá þykir það ekki síður tíðindum sæta að engin gisti fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt, nokkuð sem ekki hefur gerst í langan tíma. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×