Fótbolti

Þriðji sigur Randers í röð

Anton Ingi Leifsson skrifar
Ólafur á hliðarlínunni í leik gegn AaB á dögunum.
Ólafur á hliðarlínunni í leik gegn AaB á dögunum. vísir/getty
Randers, lærisveinar Ólafs Kristjánssonar, unnu sinn þriðja sigur í röð í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, en þeir unnu 1-0 sigur á Viborg í dag.

Staðan var markalaus í hálfleik, en Viktor Lundberg skoraði sigurmarkið á 67. mínútu eftir undirbúning Joel Allansson. Lokatölur 1-0.

Hannes Þór Halldórsson stóð vaktina í marki Randers og hélt hreinu, en Ólafur Kristjánsson tók við liðinu í sumar og hefur byrjað afar vel.

Liðið er í öðru sæti deildarinnar með tíu stig; þrjá sigra gegn Viborg, AGF og Horsens. Viborg er í níunda sætinu með fjögur stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×