Innlent

Þór kominn með Hoffell í tog

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Þór er hér kominn með Hoffell í tog.
Þór er hér kominn með Hoffell í tog. mynd/landhelgisgæslan
Varðskipið Þór er nú komið með flutningaskipið Hoffell í tog en skipið varð vélarvana um 160 sjómílur suðvestur af Færeyjum á sunnudaginn.

 

Þór kom að Hoffellinu rétt fyrir klukkan ellefu í morgun og tók það áhöfnina á varðskipinu tæpa tvo tíma að koma taug á milli skipanna þrátt fyrir töluverða ölduhæð.

Þór er nú kominn á stefnu til Reykjavíkur með Hoffellið í drætti og er áætlað að varðskipið komi með Hoffellið til hafnar í vikulokin.

mynd/landhelgisgæslan
mynd/landhelgisgæslan
mynd/landhelgisgæslan

Tengdar fréttir

Búist við að Þór nái að Hoffelli um klukkan ellefu

Búist er við að varðskipið Þór komi að flutningaskipinu Hoffelli um klukkan ellefu í dag og takið það í tog, en það rekur nú vélarvana djúpt suðvestur af Færeyjum eftir að aðalvél þess bilaði í fyrradag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×