Innlent

Þjófar staðnir að verki

Gissur Sigurðsson skrifar
vísir/pjetur

Lögreglu barst tilkynning um grunsamlegar mannaferðir við hús í miðborginni upp úr klukkan tvö í nótt. Lögregla var þegar send á vettvang, og stóð hún tvo menn að verki á vettvangi.

Þeir voru handteknir og vistaðir í fangageymslu, en báðir voru þeir undir áhrifum fíkniefna. Um svipað leiti var maður handtekinn í austurborginni, þar sem hann hafði brotist inn í bíl.

Hann var líka í fíkniefnavímu og var vistaður í fangageymslum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×