Fótbolti

Þjálfari Roma eftir útreiðina í kvöld: Algjörlega mér að kenna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Rudi Garcia.
Rudi Garcia. Vísir/Getty
Rudi Garcia, þjálfari ítalska liðsins AS Roma, kenndi bara einum manni um ófarir liðsins í Meistaradeildinni í kvöld en liðið tapaði þá 1-7 á heimavelli á móti Bayern München. Sá seki var hann sjálfur.

„Ég er fyrstur til að viðurkenna það að mistökin voru mín. Þetta er ekki leikmönnunum að kenna því ég ber alla ábyrgðina á því hvernig við spiluðum fyrri hálfleikinn," sagði Rudi Garcia en Bayern München vann fyrri hálfleikinn 5-0.

„Þetta var röng leikaðferð því við hefðum átt að spila með liðið mun aftar og reyna að ógna þeim í skyndisóknum," sagði Rudi Garcia.

„Þetta var leikfræðilegt hrun miklu frekar en sálfræðilegt hrun. Við vorum ekki nógu grimmir og leyfðum að Bayern að spila sinn bolta," sagði Rudi Garcia.

Það er hægt að sjá öll mörkin hér fyrir neðan.

1-0 fyrir Bayern 2-0 fyrir Bayern 3-0 fyrir Bayern 4-0 fyrir Bayern 5-0 fyrir Bayern 5-1 Roma skorar 6-1 fyrir Bayern 7-1 fyrir Bayern



Fleiri fréttir

Sjá meira


×