Innlent

Þingmenn leiða þrjá lista Bjartrar framtíðar

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Björt Ólafsdóttir þingmaður leiðir lista Bjartrar framtíðar í Reykjavíkurkjördæmi norður.
Björt Ólafsdóttir þingmaður leiðir lista Bjartrar framtíðar í Reykjavíkurkjördæmi norður. vísir/stefán
Stjórn Bjartrar framtíðar samþykkti í kvöld sex efstu frambjóðendur á framboðslistum í öllum kjördæmum.

Björt Ólafsdóttir þingmaður leiðir lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður og Nichole Leigh Mosty leikskólastjóri leiðir listann í Reykjavíkurkjördæmi suður. Óttarr Proppé þingmaður leiðir lista flokksins í Suðvesturkjördæmi og Páll Valur Björnsson þingmaður er í fyrsta sæti á lista flokksins í Suðurkjördæmi. Valdimar Valdemarsson framkvæmdastjóri leiðir listann í Norðvesturkjördæmi og Proben Pétursson leiðir lista flokksins í Norðausturkjördæmi.

Sjá má listana sem stjórnin samþykkti hér fyrir neðan.

Reykjavíkurkjördæmi norður

Björt Ólafsdóttir, BA í sálfræði, MA í mannauðsstjórnun og þingkona

Sigrún Gunnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur, dósent við viðskiptafæðideild HÍ og á Bifröst, leiðir Þekkingarsetur um þjónandi forystu og er formaður Krabbameinsfélags Íslands

Starri Reynisson, laganemi

Sunna Jóhannsdóttir, viðskiptafræðingur

Ólöf Hugrún Valdimarsdóttir, verkefnastjóri listkennsludeildar LHÍ og MA í forystu og stjórnun, leikari og leiklistarkennari

Steinþór Helgi Arnsteinsson, viðburðarstjóri hjá CCP

Reykjavíkurkjördæmi suður

Nichole Leigh Mosty, leikskólastjóri

Eva Einarsdóttir, frístunda- og félagsmálafræðingur, MBA, varaborgarfulltrúi og varaformaður ÍTR

Unnsteinn Jóhannsson, upplýsingafulltrúi og Kaos Pilot

Friðrik Rafnsson, bókmenntaþýðandi

Ingibjörg Ýr Jóhannsdóttir, lögreglukona og nemi í stjórnsýslu

Steinunn Ása Þorvaldsdóttir, starfsmaður mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar og diplóma frá HÍ

Suðvesturkjördæmi



Óttarr Proppé, tónlistarmaður og þingmaður

Theodóra S. Þorsteinsdóttir, lögfræðingur og formaður bæjarráðs í Kópavogi

Karólína Helga Símonardóttir, mannfræðingur, MA í hnattrænum tengslum og verkefnastjóri

Halldór Jörgensson, framkvæmdastjóri og bæjarfulltrúi í Garðabæ

Helga Björg Arnardóttir, tónlistarkennari og tónlistarkona

Guðrún Alda Harðardóttir, leikskólakennari og dr. í menntunarfræðum

Suðurkjördæmi

Páll Valur Björnsson, kennari og þingmaður

Þórunn Pétursdóttir, landgræðsluvistfræðingur

Lovísa Hafsteinsdóttir, náms- og starfsráðgjafi

Jasmina Crnac, stjórnmálafræðinemi

Eyrún Björg Magnúsdóttir, framhaldsskólakennari og stjórnsýslufræðingur

Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri

Norðvesturkjördæmi

Valdimar Valdemarsson, framkvæmdastjóri

Kristín Sigurgeirsdóttir, skólaritari og MLM nemandi í forystu og stjórnun

Ásthildur Ósk Ragnarsdóttir, skólaliði og handverkskona

Matthías Freyr Matthíasson, barnaverndarstarfsmaður og laganemi

Gunnsteinn Sigurðsson, umsjónarþroskaþjálfi og grunnskólakennari

Gunnlaugur Ingivaldur Grétarsson, fjallaleiðsögumaður

Norðausturkjördæmi



Preben Pétursson, mjólkurtæknifræðingur

Dagný Rut Haraldsdóttir, lögfræðingur hjá Félagi einstæra foreldra og sáttamiðlari

Arngrímur Viðar Ásgeirsson, íþróttakennari og hótelstjóri

Haukur Logi Jóhannsson, verkefnastjóri

Jónas Björgvin Sigurbergsson, nemi og íþróttamaður

Margrét Kristín Helgadóttir, stjórnsýslufræðingur og lögfræðingur hjá Fiskistofu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×