Skoðun

Þetta blessaða kerfi okkar í geðheilbrigðisþjónustu

Eymundur L. Eymundsson skrifar
Sparnaður er með félagssamtökum og fagmönnum á jafningjagrunni. Þarf að ráða batafulltrúa á geðdeild SAk á Akureyrir eins og er í Reykjavík enda stórt svæði. Batafulltrúi getur m.a. bent á úrræði og verið milliliður gagnvart kvörtunum og hvað mætti betur fara fyrir þau sem þurfa á þjónustu að halda. Þar á meðal eru aðstandendur sem verða oft útundan í kerfinu og vita ekki hvernig á að bregaðst við.

Með lyf þá var ég á miklum lyfjum en er á litlu í dag með að nýta mér m.a. Hugarafl. Hugsanlega verð ég lyfjalaus einhvern tímann en það er ekki markmið í sjálfu sér. Sama má segja að hjá okkur í Grófinni hafa menn getað minnkað við sig lyf eftir að hafa tekið skrefið og nýtt sér hjálpina. Mikilvægt að hafa lækni með í ráðum þegar lyf er minnkuð og nýta sér hjálpina með félagssamtökum um leið.

Meiri fræðslu og forvarnir í samfélaginu til að auka skilning og draga úr fordómum gagnvart þeim sem eru að glíma við geðraskanir. Stuðla þarf að bættri nálgun í geðheilbrigðiskerfinu þar sem hugmyndir valdeflingar um notendasýn og bataferli á jafningjagrunni fái aukið vægi.

Það eru mörg félög að gera góða hluti á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðini sem hafa hjálpað mörgum að stíga skrefið í átt að bata og bættum lífsgæðum. Með meiri samvinnu félagssamtaka, kerfisins og stjórnvalda er m.a. hægt að minnka álag á geðdeildum og koma í veg fyrir að fólk einangri sig sem getur haft alvarlegar afleiðingar. Kalla líka eftir meiri samvinnu félaga á lamdsvísu þótt þau séu með mismunandi úrræð þá ættu þau að geta unnið saman að ýmsum stórum verkefnum og hafa áhrif sem ein stór heild.

Við þurfum að komast úr gömlu hjólförunum og vinna betur saman. Enda er hluti af valdeflinguni að komast úr gömlu hjólförunum. Fjölmiðlar geta spilað stórt hlutverk með enn betri samvinnu við félagssamtök með að sýna það jákvæða sem er gert. Margt hægt að gera með jákvæðni og opnum huga að leiðarljósi fyrir fólkið sem þarf á þessu að halda.




Skoðun

Skoðun

Um dánaraðstoð

Steinunn Þórðardóttir,Oddur Steinarsson,Thelma Kristinsdóttir,Katrín Ragna Kemp,Magdalena Ásgeirsdóttir,Margrét Ólafía Tómasdóttir,Ragnar Freyr Ingvarsson,Teitur Ari Theodórsson,Theódór Skúli Sigurðsson skrifar

Skoðun

Hún

Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Sjá meira


×