Innlent

Þessir frambjóðendur voru oftast strikaðir út

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Gunnar Bragi Sveinsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skipa efstu þrjú sætin.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Gunnar Bragi Sveinsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skipa efstu þrjú sætin. grafík/garðar
Nöfn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, Gunnars Braga Sveinssonar og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur voru oftast strikuð út af kjósendum í nýliðnum kosningum. Alls strikuðu 817 kjósendur Framsóknarflokks yfir nafn Sigmundar Davíðs, 563 kjósendur Viðreisnar yfir nafn Þorgerðar Katrínar og 317 kjósendur Framsóknar yfir nafn Gunnars Braga.

Kjörstjórnir hafa skilað af sér skýrslu til landskjörstjórnar og Hagstofu Íslands þar sem sjá má hversu margar breytingar voru gerðar á þeim flokkum sem komu mönnum inn á þing. Þegar talað er um breytingar er átt við um endurröðun á listum; annað hvort yfirstrikanir eða niðurfærslu á sætum. Í langflestum tilfellum er þó um yfirstrikanir að ræða.

Enginn þingmaður fellur um sæti vegna útstrikana, samkvæmt upplýsingum frá kjörstjórnum.

Hér fyrir neðan má sjá lista yfir breytingar.

Alls gerðu 172 kjósendur Framsóknar í Suðvesturkjördæmi breytingar á nafni Eyglóar Harðardóttur, og alls 76 kjósendur Sjálfstæðisflokks í Reykjavík suður á nafni Brynjar Níelssonar. Vísir/Anton/Vilhelm
Suðvesturkjördæmi

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, oddviti Viðreisnar var lang oftast strikuð út, eða færð niður um sæti, í Suðvesturkjördæmi. Alls voru 563 breytingar gerðar á nafni hennar, sem samsvarar breytingum frá 8,21 prósent kjósenda. Bjarni Benediktsson skipar þar annað sætið með 274 breytingar og Eygló Harðardóttir þriðja sætið með 172 breytingar.

Gerðar voru breytingar á nöfnum allra frambjóðenda, nema Halldórs J. Jörgenssonar, sem skipaði fjórða sætið á lista Bjartrar framtíðar.

Björt framtíð

Óttarr Proppé - 12

Theodóra S. Þorsteinsdóttir - 9

Karólína Helga Símonardóttir - 8

Halldór J. Jörgensson – 0

Framsóknarflokkur

Eygló Harðardóttir - 172

Willum Þór Þórsson - 27

Páll Marís Pálsson  - 12

Viðreisn

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir - 563

Jón Steindór Valdimarsson - 20

Sigrún Ingibjörg Gísladóttir - 8

Bjarni Halldór Janusson – 8

Sjálfstæðisflokkur

Bjarni Benediktsson - 274

Bryndís Haraldsdóttir - 141

Jón Gunnarsson - 172

Óli Björn Kárason - 125

Vilhjálmur Bjarnason – 205

Píratar

Jón Þór Ólafsson - 21

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir - 21

Andri Þór Sturluson - 16

Sara Elísa Þórðardóttir – 22

Vinstri græn

Rósa Björk Brynjólfsdóttir - 8

Ólafur Þór Gunnarsson - 22

Una Hildardóttir – 3

Norðausturkjördæmi

Enginn var oftar strikaður út en Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, oddviti Framsóknarflokks í Norðausturkjördæmi, eða 817 sinnum, sem samsvarar að 17,99 prósent kjósenda í kjördæminu gerðu breytingar á nafni hans; strikuðu það út eða færðu niður um sæti. Steingrímur J. Sigfússon var með næstflestar breytingar eða 155.

Framsóknarflokkur

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson - 817

Þórunn Egilsdóttir - 57

Líneik Anna Sævarsdóttir - 45

Sigfús Arnar Karlsson - 38

Viðreisn

Benedikt Jóhannesson - 8

Hildur Betty Kristjánsdóttir - 2

Jens Hilmarsson – 2

Sjálfstæðisflokkur

Kristján Þór Júlíusson - 64

Njáll Trausti Friðbertsson - 38

Valgerður Gunnarsdóttir - 27

Arnbjörg Sveinsdóttir – 32

Píratar

Einar Aðalsteinn Brynjólfsson - 13

Guðrún Ágústa Þórdísardóttir - 12

Gunnar Ómarsson - 14

Samfylking

Logi Már Einarsson - 21

Erla Björg Guðmundsdóttir - 5

Hildur Þórisdóttir - 4

Vinstri græn

Steingrímur J Sigfússon - 155

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir - 11

Björn Valur Gíslason - 127

Ingibjörg Þórðardóttir - 2

Norðvesturkjördæmi

Alls gerðu 10,56 prósent kjósenda Framsóknarflokks í Norðvesturkjördæmi breytingar á nafni Gunnars Braga Sveinssonar, eða alls 371. Einungis einn var oftar strikaður út af lista á landsvísu; Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.

Framsóknarflokkur

Gunnar Bragi Sveinsson - 371

Elsa Lára Arnardóttir - 11

Sigurður Páll Jónsson - 8

Lilja Sigurðardóttir - 1

Sjálfstæðisflokkur

Haraldur Benediktsson - 39

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir - 19

Teitur Björn Einarsson - 21

Hafdís Gunnarsdóttir - 8

Píratar

Eva Pandora Baldursdóttir - 13

Gunnar I. Guðmundsson - 16

Eiríkur Þór Theódórsson - 8

Samfylking

Guðjón S. Brjánsson - 12

Inga B. Bjarnadóttir - 1

Hörður Ríkharðsson - 0

Vinstri græn

Lilja Rafney Magnúsdóttir - 50

Bjarni Jónsson - 48

Dagný Rósa Úlfarsdóttir - 9

Alls strikuðu 1,97 prósent kjósenda Sjálfstæðisflokks yfir nafn Ásmundar Friðrikssonar. Þá gerðu alls 70 breytingar á nafni Páls Magnússonar, oddvita flokksins í kjördæminu, eða 0,82 prósent kjósenda.
Suðurkjördæmi

Þrátt fyrir að langalgengast sé að breytingar séu gerðar á oddvitum flokkanna, á það ekki við í tilfelli Sjálfstæðisflokks í Suðurkjördæmi, því Ásmundur Friðriksson var alls 168 sinnum strikaður út af lista, en hann skipaði annað sæti listans. Það samsvarar breytingum frá 1,97 prósent kjósenda í kjördæminu. Páll Magnússon, oddviti flokksins skipar annað sætið í kjördæminu með 70 útstrikanir. Fæstar breytingar voru gerðar á lista Samfylkingarinnar.

Framsóknarflokkur

Sigurður Ingi Jóhannsson - 50

Silja Dögg Gunnarsdóttir - 21

Ásgerður K. Gylfadóttir - 1

Einar Freyr Elínarson - 7

Viðreisn

Jóna Sólveig Elínardóttir - 6

Jóhannes A. Kristbjörnsson - 19

Ingunn Guðmundsdóttir - 1

Sjálfstæðisflokkur

Páll Magnússon - 70

Ásmundur Friðriksson - 168

Vilhjálmur Árnason - 26

Unnur Brá Konráðsdóttir - 53

Kristín Traustadóttir - 11

Hólmfríður Erna Kjartansdóttir - 11

Ísak E. Kristinsson - 15

Brynjólfur Magnússon - 0

Píratar

Smári McCarthy - 31

Oktavía Hrund Jónsdóttir - 7

Þórólfur Júlían Dagsson - 10

Samfylking

Oddný G. Harðadóttir - 4

Ólafur Þór Ólafsson - 3

Arna Ír Gunnarsdóttir - 2

Vinstri græn

Ari Trausti Guðmundsson - 9

Heiða Guðný Ásgeirsdóttir - 0

Daníel Arnarsson – 1

Alls gerðu 198 kjósendur Pírata breytingar á nafni Birgittu Jónsdóttur í Reykjavík norður, eða 2,98 prósent. 274 hreyfðu við nafni Bjarna Benediktssonar í Suðvesturkjördæmi, eða 1,52 prósent.vísir
Reykjavíkurkjördæmi norður

Nafn Birgittu Jónsdóttur Pírata var það nafn sem kjósendur flokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður strikuðu oftast yfir, eða alls 198 sinnum, sem þýðir að 2,98 prósent kjósenda hreyfðu við nafni Birgittu. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins koma þar á eftir; Guðlaugur Þór Þórðarson með 161 útstrikun og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir með 123 útstrikanir, eða breytingar.

Björt framtíð

Björt Ólafsdóttir - 19

Sigrún Gunnarsdóttir - 3

Starri Reynisson - 6

Viðreisn

Þorsteinn Víglundsson - 55

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsson - 4

Páll Rafnar Þorsteinsson - 5

Sjálfstæðisflokkur

Guðlaugur Þór Þórðarson - 161

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir - 123

Birgir Ármannsson - 67

Albert Guðmundsson - 22

Herdís Anna Þorvaldsdóttir - 25

Jón Ragnar Ríkarðsson - 13

Píratar

Birgitta Jónsdóttir - 198

Björn Leví Gunnarsson - 16

Halldóra Mogensen - 32

Katla Hólm Þórhildardóttir - 15

Vinstri græn

Katrín Jakobsdóttir - 5

Steinunn Þóra Árnadóttir - 16

Andrés Ingi Jónsson - 22

Iðunn Garðarsdóttir - 16

Orri Páll Jóhannsson - 10

Álfheiður Ingadóttir – 54

Reykjavíkurkjördæmi suður

Gerðar voru flestar breytingar á lista Sjálfstæðisflokks í Reykjavíkurkjördæmi suður. Alls hreyfðu 111 kjósendur flokksins við nafni Ólafar Nordal, eða 1,24 prósent kjósenda, og alls 76 við nafni Brynjar Níelssonar, eða 0,85 prósent kjósenda.

Björt framtíð

Nichole Leigh Mosty - 24

Eva Einarsdóttir - 7

Unnsteinn Jóhannsson - 8

Framsóknarflokkur

Lilja Dögg Alfreðsdóttir - 9

Ingvar Mar Jónsson - 16

Alex Björn Bulow Stefánsson - 7

Viðreisn

Hanna Katrín Friðriksson - 53

Pawel Bartoszek - 28

Dóra Sif Tynes - 24

Geir Finnsson - 12

Sjálfstæðisflokkur

Ólöf Nordal - 111

Brynjar Níelsson - 76

Sigríður Á. Andersen - 38

Hildur Sverrisdóttir - 41

Bessí Jóhannsdóttir - 20

Jóhannes Stefánsson - 6

Píratar

Ásta Guðrún Helgadóttir - 60

Gunnar Hrafn Jónsson - 21

Viktor Orri Valgarðsson - 21

Olga Cilia - 15

Vinstri græn

Svandís Svavarsdóttir - 70

Kolbeinn Óttarsson Proppé - 22

Hildur Knútsdóttir - 14

Gísli Garðarsson - 8


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×