Skoðun

Þegar fjöll og fossar þurfa rödd – Andri Snær í forsetaembættið

Soffía Vagnsdóttir skrifar
„Fjöllin hafa vakað í þúsund ár“ – og gott betur. Að veita athygli því sem veitir okkur lífið, náttúrunni sjálfri, er hollt fyrir okkur öll. Ef við ímyndum okkur að náttúran okkar þurfi brátt að mæla og koma til okkar mikilvægum skilaboðum, hver yrðu þau? 

Íslensk náttúra er eitt allsherjar listaverk, málað í stórkostlegum litbrigðum sem skipta litum eftir árstíðum og veðri. Við þurfum að standa vörð um náttúru og náttúruauðlindir, að muna að við sem nú búum hér og nýtum landið, eigum þeim skyldum að gegna að tryggja að komandi kynslóðir eigi sömu valkosti til búsetu og við og jafnvel betri. Og til þess þurfum við að nýta sköpunarkraftinn og samtakamáttinn sem í okkur býr. Við þurfum að auka samræðu um nýsköpun, finna leiðir til orkusparnaðar, ígrunda kröfur okkar um veraldleg gæði, og huga að endurnýtingu og samnýtingu á ýmsu. Við þurfum að styrkja lýðræðislega hugsun og samræðu þar sem allar hugmyndir og skoðanir fá að hljóma án þess þó að til átaka komi og geta rætt okkur til farsællar niðurstöðu í mikilvægum málum. 

Andri Snær Magnason býður sig nú fram til embættis forseta Íslands. Hann hefur um langa hríð lagt sitt á vogarskálarnar til að tala fyrir fjöllin og fossana. Hann hefur í ræðu og riti talað fyrir varkárni í nýtinu auðlinda og fremur hvatt til virkjunar hugaraflsins/ímyndunaraflsins til auðlindasköpunar. Það eru ekki  mörg ár síðan fáir höfðu trú á ferðamennsku, kvikmyndabransa, tónlistarauðlind eða íslenskum bókmenntum á heimsmarkaði. „Hér verður ekkert annað en fiskur og svo kannski álframleiðsla eða olíuhreinsistöð í fallegum firði“, sögðu menn. 

Nú hefur annað komið á daginn. Arnaldur og Yrsa seljast út um víða veröld, Baltasar kominn til Hollywood og ferðaþjónusta er orðin stærsta atvinnugreinin þar sem íslensk náttúra er aðal aðdráttaraflið.

Andri Snær Magnason hefur líka skrifað frábærar bækur með mikilvægum boðskap fyrir börn sem fræða þau m.a. um umhverfi og náttúru og virðingu fyrir henni.

Andri Snær hefur sagt að hann vilji beita embætti forseta Íslands til að tala fyrir þessum mikilvægu þáttum, náttúru, menningu og lýðræði

Það þarf nýja hugsun í alla valdastóla þar sem spilling og hagsmunatengsl heyra sögunni til. Það þarf vettvang við opna samræðu. Andri Snær vill beita sér í embætti forseta af hreinum vilja til að skapa heilbrigðara og lýðræðislegra samfélag þar sem fjölmenning og frjó hugsun fá notið sín. 

Það er mjög mikilvægt að hann fá til þess góða kosningu. Það er hugsun inn í framtíðina.

 




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×