Bíó og sjónvarp

The Breakfast Club fagnar þrítugsafmæli

Gunnhildur Jónsdóttir skrifar
Krakkarnir kynnast hvert öðru og sjálfum sér betur í eftirsetunni.
Krakkarnir kynnast hvert öðru og sjálfum sér betur í eftirsetunni. Mynd/Getty
Á þessu ári fagnar stórmyndin The Breakfast Club þrítugsafmæli sínu. Myndin kom út árið 1985 og var leikstýrt af John Hughes sem leikstýrði meðal annars Pretty in Pink og Home Alone. Gagnrýnendur telja myndina vera eina af bestu menntaskólamyndum sem hafa verið gerðar. Myndin var gefin aftur út í ár í Bandaríkjunum í tilefni stórafmælisins.

Myndin fjallar um fimm unglinga sem þurfa að koma í skólann á laugardegi í eftirsetu. Þau eru hvert úr sínum hópnum innan skólans. Eftir heilan dag saman í eftirsetunni komast þau að því að þau hafa öll mun meira upp á að bjóða heldur en steríótýpurnar sem þau hafa álitið sjálf sig vera.

Með aðalhlutverk í myndinni fara Emilio Estevez, Judd Nelson, Molly Ringwald, Anthony Hall og Ally Sheedy. Öll þeirra eru talin hafa náð hápunkti á ferlinum í myndinni en ekkert þeirra hefur leikið stórt hlutverk í þekktri mynd síðan nema Anthony Hall, en hann var með sína eigin sjónvarpsseríu og lék í Batman og Edward Scissorhands. Kennarinn sem sat yfir þeim í myndinni, leikarinn Paul Gleason, er hins vegar þekktari, en frammistaða hans í myndinni er talin einstaklega góð.

Ólíkur hópur Unglingarnir í myndinni eru hver úr sínum hópnum innan skólans.Mynd/Getty
The Breakfast Club hefur verið vinsæl hjá öllum kynslóðum enda er myndin talin tímamótaverk. Fólk af öllum kynslóðum hefur séð myndina og flestir mörgum sinnum. Lokalagið í myndinni er með hljómsveitinni Simple Minds og heitir Don‘t you en það gerir gæfumuninn í að ljúka myndinni. Lagið er enn í dag tengt The Breakfast Club. 

Myndin hefur slegið svo í gegn að í dag eru veitingastaðir í London sem bera heitið Breakfast Club ásamt því að einn vinsælasti útvarpsþátturinn í Bandaríkjunum ber sama nafn. 

John Hughes, leikstjóra myndarinnar, bregður aðeins fyrir í henni. Hann leikur föður íþróttamannsins Brians og sækir hann í skólann. Öll útiskotin af skólanum í myndinni eru af menntaskólanum sem John Hughes gekk í, Blenbrook North High School. Nafn myndarinnar kom frá syni vinar leikstjórans en hann og vinir hans kölluðu það að sitja eftir í skólanum Breakfast club.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×