Innlent

Þarf ekki að rukka kistulagningargjald

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Rúnar Geirmundsson neitaði að innheimta gjöld á útfarir og kistulagningar fyrir Kirkjugarða Reykjavíkur.Fréttablaðið/Daníel
Rúnar Geirmundsson neitaði að innheimta gjöld á útfarir og kistulagningar fyrir Kirkjugarða Reykjavíkur.Fréttablaðið/Daníel
„Þetta mál hefur legið þungt á okkur í eitt og hálft ár,“ segir Rúnar Geirmundsson, eigandi Útfararþjónustunnar sem í gær var sýknuð af kröfu Kirkjugarða Reykjavíkur um greiðslu gjalds við útfarir og kistulagningar í kirkjunni og kapellunni í Fossvogi.

Kirkjugarðar Reykjavíkur settu gjaldið á í ársbyrjun 2012. Það er 3.500 krónur fyrir kapelluna og 6.500 krónur fyrir kirkjuna. Þórsteinn Ragnarsson, forstjóri Kirkjugarðanna, segir gjaldinu ætlað að vega upp á móti kostnaði við húsnæðið þótt því fari fjarri að það endurspegli hann allan. Eðlilegt hafi þótt að útfararstofur önnuðust innheimtuna.

„Við erum svolítið hissa,“ segir Þórsteinn. „Dómarinn telur að viðkomandi útfararstofa eigi ekki aðild að málinu. Þannig að það gilda ekki sömu hefðbundnu viðskiptavenjur gagnvart Kirkjugörðunum og öðrum kirkjum.“

Rúnar minnir á að á árunum 2004 til 2006 hafi Kirkjugarðarnir lagt á líkhúsgjald sem umboðsmaður Alþingis hafi sagt ólöglegt þar sem fyrir því væri ekki lagaheimild. Nú hafi verið reynt að koma á nýju gjaldi og lagt fyrir útfararþjónustur að innheimta það af viðskiptavinum.

„Þetta eru peningar sem við höfum alltaf neitað að rukka og höfum aldrei rukkað. Niðurstaðan er komin og þeir hafa enga heimild til að skikka fyrirtæki úti í bæ til að rukka fyrir sig gjald; hvort sem það er löglegt eða ólöglegt,“ segir Rúnar.

Þórsteinn segir Kirkjugarðana muna um gjaldið því þeir hafi verið reknir með tapi síðastliðin tvö ár. Ekki var tekin afstaða til þess í Héraðsdómi Reykjavíkur hvort gjaldið sé löglegt eða ekki.

Þórsteinn bendir á að í líkhúsgjaldamálinu hafi umboðsmaður Alþingis lagt til að heimildir í lögum yrðu gerðar skýrari. Þetta hafi ekki gerst.

„Heppilegast væri fyrir alla að menn tækju á honum stóra sínum í innanríkisráðuneytinu og kæmu því á hreint hvort setja eigi þetta sem heimild í lögum eða ekki. Ég væri mjög sáttur við að niðurstaðan á löggjafarsamkundunni yrði að það væri ekki leyft. Þá yrðum við bara að velta við öðrum steinum. Á meðan þetta hangir svona í lausu lofti er öllum gert mjög erfitt fyrir,“ segir Þórsteinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×