Fótbolti

Það er nákvæmlega svona leiðinlegt að vera með Messi í reitarbolta | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Lionel Messi.
Lionel Messi. vísir/getty
Lionel Messi og félagar hans í Spánarmeistaraliði Barcelona eru staddir á Englandi þar sem þeir æfa á St. George's Park, æfingasvæði enska landsliðsins, fyrir leik liðsins gegn Celtic í ICC-æfingamótinu.

Messi, sem varð fyrir því áfalli að tapa þriðja úrslitaleiknum með Argentínu í röð fyrr í sumar, var heldur betur í stuði á æfingu gærdagsins þar sem hann gerði hreinlega grín að liðsfélögum sínum.

Argentínski snillingurinn er búinn að aflita á sér hárið en glókollurinn fór ansi illa með félaga sína í reitabolta þar sem hann klobbaði Luis Suárez alveg svakalega illa.

Barcelona náði mörgum tilþrifum Messi á myndband sem það birti síðan á Twitter-síðu sinni. Þar kemur í ljós bara nákvæmlega hversu erfitt og leiðinlegt það er að vera með Lionel Messi í reitarbolta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×