Enski boltinn

Terry búinn að framlengja við Chelsea

John Terry.
John Terry. vísir/getty
Það er nú orðið ljóst að John Terry mun spila með Chelsea á næstu leiktíð.

Terry skrifaði nú síðdegis undir eins árs samning. Hann er orðinn 34 ára gamall og núverandi samningur átti að renna út í sumar.

„Þessi samningur er ekki til að segja takk fyrir. Hann fær samning því hann er enn að standa sig og er hágæðavarnarmaður," sagði Jose Mourinho, stjóri Chelsea.

Terry spilaði sinn fyrsta leik fyrir Chelsea árið 1998 og hefur unnið 13 stóra titla með félaginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×