Innlent

Telja mikilvægt að fjölga í lögreglunni vegna Bakka

Sveinn Arnarsson skrifar
Húsavík er í umdæmi lögreglunnar á Norðausturlandi. Umdæmið er gríðarlega víðfeðmt. Að mati lögreglustjórans er mönnun í algjöru lágmarki.
Húsavík er í umdæmi lögreglunnar á Norðausturlandi. Umdæmið er gríðarlega víðfeðmt. Að mati lögreglustjórans er mönnun í algjöru lágmarki. Fréttablaðið/GVA

Bæjarráð Norðurþings telur mikilvægt að tryggja ásættanlegt þjónustustig lögreglunnar á svæðinu. Aukinn íbúafjöldi í sveitarfélaginu vegna uppbyggingar á Bakka kallar á að bætt verði í löggæslu á svæðinu.

­Kristján Þór Magnússon, sveitarstjóri Norðurþings, telur þjónustustig lögreglunnar á Húsavík of lágt. Á fundi bæjarráðs Norðurþings þann 20. nóvember síðastliðinn var staða lögreglunnar rædd.

Fyrir fundinn var lagt fram minnisblað Kristjáns Þórs sem hann ritaði eftir fund með lögreglustjóra á Norðurlandi eystra, Höllu Bergþóru Björnsdóttur. Aðeins þrír lögreglumenn eru á vakt á hverjum degi hjá lögreglunni á Húsavík. Einn er á vakt frá sjö árdegis til þrjú eftir hádegi. Þá taka tveir við og eru til eitt eftir miðnætti.

Kristján Þór Magnússon

„Það sýnir sig að lítið má út af bregða og þá er enginn á vakt,“ segir Kristján Þór. „Svæðið sem þessi lögregla sinnir er gríðarlega stórt og fjölfarið af ferðamönnum einnig. Svo erum við á leið inn í uppbyggingartíma á Bakka með tilheyrandi hættu á slysum og óhöppum og því teljum við mikla þörf á að auka við mannskap lögreglunnar á svæðinu.“ 

Halla Bergþóra segir það ekkert launungarmál að lögregluembættið á Norðurlandi eystra, sem sinnir fimmtungi alls landsins að flatarmáli, sé ekki nægjanlega mannað. 

„Við værum til í að geta bætt við okkur um sjö starfsmönnum allt frá Fjallabyggð til Þórshafnar. Þetta er víðfeðmt svæði og við teljum mönnunina nú í algjöru lágmarki,“ segir Halla Bergþóra. „Hins vegar höfum við ekki fengið svigrúm í fjárlögum til að bæta við okkur mannskap.“ 

Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn á Akureyri, segir umdæmið lengi hafa þurft að berjast við niðurskurð. 

„Eins og staðan er núna er sami lögreglufjöldi á dagvakt hér á Akureyri og var þegar bæjarlögreglan hætti störfum og lögreglan fór yfir til ríkisins, rétt eftir 1970. Það hefur fækkað í lögregluliðinu eftir hrun en einnig verður að minna á það að það fækkaði einnig á árunum fyrir hrun,“ segir Daníel.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×