Innlent

Tekist á um flutning lögreglunáms: „Ég frábið mér svona málflutning“

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Brynhildur Pétursdóttir er þingkona Bjartrar Framtíðar í Norð-Austur kjördæmi
Brynhildur Pétursdóttir er þingkona Bjartrar Framtíðar í Norð-Austur kjördæmi
Tekist var á um flutning lögregluskólans til Akureyrar á Alþingi í dag. Fréttablaðið greindi frá því í morgun að Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, hefði ákveðið að flytja kennslu og rannsóknarstarfsemi á sviði lögreglufræða til Háskólans á Akureyri. Háskóli Íslands var talinn hæfastur samkvæmt matnsefnd Ríkiskaupa til að taka að sér námið. Valgerður Bjarnadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, telur flutninginn mjög undarlegan.

„Nú er komið í ljós úr þessu útboði, það var sem sagt útboð, að Háskóli Íslands var langstigahæstur og metinn hæfastur. Hann fékk 9,5 af 10 stigum. En hæstvirtur ráðherra hefur ákveðið að námið eigi að fara fram á Akureyri. Á að kenna þetta í fjarkennslu? Hvar er mest þörf á lögreglumönnum? Það er á suðvesturhorninu. Hvar er flesta fólkið sem hugsanlega vildi fara í þetta nám? Það er hérna á suðvesturhorninu,“ sagði Valgerður.

Valgerður velti upp þeirri spurningu hvort að um annað „fiskistofuævintýri“ sé að ræða og að aðeins einn nemandi verði í lögregluskólanum á Akureyri. „Er ekki einn starfsmaður Fiskistofu á Akureyri? Ég veit að það gæti virst að ég væri fædd í gær að tala um þetta hér því að það má náttúrlega aldrei tala um svona hluti á þessu þingi. En ég er ekki fædd í gær. Mér finnst þetta hneyksli. Og undarlegt í minnsta lagi.“

Telur viðhorfið með ólíkindum

Brynhildur Pétursdóttir, þingmaður Bjartrar Framtíðar, svaraði Valgerði fullum hálsi og sagðist vera allt að því misboðið. „Mér finnst það viðhorf alveg hreint með ólíkindum að ef eitthvað sé úti á landi þá hljóti það að vera á einhvern hátt slakara,“ sagði Brynhildur. „Það væri náttúrlega hræðilegt ef einhver þyrfti að flytja til Akureyrar í tvö, þrjú ár og sinna námi þar. Þvílík örlög.“

Brynhildur hafði ætlað sér að ræða annað mál. „Ég frábið mér svona málflutning. Ég ætlaði nú ekki að taka svona sterkt til orða, en ég bara get ekki annað eftir að hafa hlustað á þessa ræðu."

Brynhildur benti á að Háskóli Íslands hefði líklega alltaf verið metinn hæfastur. „Hann er einfaldlega stærstur, með mesta „bakköppið“, með flesta kennarana, með mesta stuðninginn, en þá spyr ég: Eigum við bara að hafa allt nám í Háskóla Íslands?“ spurði Brynhildur, en þá var gripið fram í fyrir Brynhildi úr sal með einu „já“.

Landbúnaðarskóla lent í niðurskurðarhníf

Ekki eru allir sáttir með flutning lögreglunámsins til Akureyar. Vilhjálmur Egilsson, rektor Háskólans á Bifröst, birti í dag pistil á Skessuhorni þar sem hann gagnrýndi ákvörðunina harðlega. Háskólinn á Bifröst var ekki metinn hæfur í umsókn sinni.

„Háskólar á landsbyggðinni eru í eilífri baráttu og mæta litlum skilningi. Það er helst Háskólinn á Akureyri sem hefur fengið svigrúm til uppbyggingar en landbúnaðarskólarnir sannarlega lent fyrir niðurskurðarhnífnum,“ sagði Vilhjálmur meðal annars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×