Bíó og sjónvarp

Taka upp heimildamynd um víkingaklappið

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Tökulið frá Bretlandi er á landinu þessa dagana til að taka upp heimildamynd um víkingaklappið sem íslenskir stuðningsmenn landsliðsins í fótbolta gerðu heimsfrægt á EM í sumar.



Leikstjórinn, David Schofield, kom í dag til landsins ásamt fjögurra manna tökuliði. Hann hefur langað að vita meira um klappið góða frá því að hann horfði á íslenska landsliðið sigra það enska á EM í sumar.



„Þetta er mjög einstakt og eitthvað sem maður myndi ekki sjá á enskum fótboltaleik. Eining fólksins og samkennd er mjög sérstök og ég vil komast að meiru um þetta,” segir David en hann verður hér á landinu fram á miðvikudag og vonast til að hitta fjölbreyttan hóp Íslendinga á þeim tíma, sem segja honum frá þeirra upplifun af klappinu.

„Við myndum margt mismunandi fólk, við tökum upp með miklum stuðningsmanni í íslensku treyjunni, krakka hérna á fótboltavelli í dag, kraftakarl og við myndum líka íslenska fjölskyldu. Ég ætla að mynda sjómenn á morgun og ýmislegt annað.“

Tökunum mun ljúka á því að David myndar stóran hóp fólks að gera víkingaklappið saman. David hvetur því alla sem sem hafa áhuga á að taka þátt en tökurnar munu fara fram að Rauðhólum í Heiðmörk klukkan sex á þriðjudag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×