Innlent

Tæp tvö þúsund tonn af lambakjöti til frá í fyrra

Sveinn Arnarsson skrifar
Árlega er slátrað um 10 þúsund tonnum af lambakjöti á Íslandi. Nú eru um eitt þúsund og átta hundruð tonn eftir. Þórarinn Ingi Pétursson segir magnið nú minna en í fyrra.
Árlega er slátrað um 10 þúsund tonnum af lambakjöti á Íslandi. Nú eru um eitt þúsund og átta hundruð tonn eftir. Þórarinn Ingi Pétursson segir magnið nú minna en í fyrra.
Um eitt þúsund og átta hundruð tonn af lambakjöti voru enn til í sláturhúsum landsins af sláturtíð síðasta hausts þann 1. ágúst síðastliðinn. Nú fer að líða að því að sláturtíð hefjist á þessu ári og er líklegt að slátrað verði um 10 þúsund tonnum þetta haustið.

Þórarinn Ingi ?Pétursson, ?formaður Landssamtaka sauðfjárbænda.
Þórarinn Ingi Pétursson, formaður Landssamtaka sauðfjárbænda, segir þetta magn ekki mikið. „Við erum að selja um 500 tonn á mánuði svo þetta er ekki svo mikið magn af kjöti sem eftir er frá sláturtíð í fyrra,“ segi Þórarinn. „Bendi ég á að hér fyrir nokkrum árum áttum við um eitt þúsund tonn eftir þegar sláturtíð hófst og þá töluðu menn um kjötskort í landinu.“

Sauðfjárstofninn á Íslandi hefur verið að stækka síðustu ár eftir að hafa verið í sögulegu lágmarki árið 2005. Hér á landi eru rétt tæplega 500 þúsund kindur og um 550 þúsund dilkum er slátrað á hverju ári.

Þórólfur ?Matthíasson, ?prófessor.mynd/kristinn ingvarsson
„Það að við séum með tæplega tvö þúsund tonn af óseldu lambakjöti í frystigeymslum frá því fyrir rétt tæpu ári sýnir að markaðsforsendur eru ekki fyrir hendi í greininni. Verðið ætti því að bregðast við með réttum hætti og lækka verð til neytenda. Markaðurinn er ekki í þessum geira að bregðast við með réttum hætti gagnvart offramboði eða vanframboði," segir Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði.

Þórarinn Ingi bendir á að verð til bænda hafi lækkað frá því í fyrra og segir hann marga sauðfjárbændur skoða hvort grundvöllur sé til staðar til að halda áfram framleiðslu. „Ég veit um þó nokkra bændur sem ætla sér að hætta í haust og aðra sem eru að skoða þetta. Afurðaverð til bænda stóð í stað milli ára. Á meðan allt annað hækkar í framleiðslunni þá fáum við sömu krónutöluna fyrir gripinn,“ segir Þórarinn og spáir því að lömbin verði minni í ár en í fyrra. „Ég gæti trúað því að í þessari sláturtíð verði fallþungi dilka í slæmu meðalári. Ótíð í vor og sumar hefur þar hönd í bagga.“ 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×