Pistillinn

Fréttamynd

Pistillinn: Liðsfélaginn

Körfuboltamenn eru reglulega reknir úr starfi. Ástæðan er yfirleitt sú að þeir eru ekki nógu góðir í körfubolta. Aðrar ástæður geta legið að baki, meiðsli, ekki rétt týpa af leikmanni o.s.frv. Svo er önnur ástæða sem er ekki óalgeng, að leikmaðurinn er svo mikill fáviti að það er lífsins ómögulegt að eyða miklum tíma með honum.

Körfubolti
Fréttamynd

Pistillinn: Aðallinn í heimsókn hjá kónginum

„Til að vinna hér þarftu að standast mikla pressu, komast yfir margar hindranir og mátt ekki setja út á ákvarðanir dómarans. Ögranirnar og hótanirnar sem hann þarf að líða eru með ólíkindum. Það þarf kraftaverk til þess að vinna hér,“ sagði hundfúll en unglegur Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, að loknu 3-3 jafntefli gegn Liverpool á Anfield árið 1988. Ferguson taldi ákvarðanir dómarans hafa kostað lið sitt sigur á erkifjendunum sem voru í sérflokki.

Enski boltinn
Fréttamynd

Pistillinn: Gefðu boltann!

Einspilari er orð sem er nánast eingöngu notað í yngri flokkum í knattspyrnu. Krakkar eða táningar sem kjósa ítrekað að fara sínar eigin leiðir frekar en að senda á samherja. Hvers vegna? Þeir vita að oftar en ekki virkar það.

Sport
Fréttamynd

Pistillinn: Fullorðni óvitinn

„Fergie, semdu við hann,“ hljómaði ósjaldan á Old Trafford á árunum 2007-2009. Stuðningsmenn Manchester United skildu ekki hvers vegna Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri félagsins, vildi ekki gera langtímasamning við Carlos Tevez.

Enski boltinn
Fréttamynd

Pistillinn: Aldrei gefast upp!

Þolinmæði þrautir vinnur allar. Þetta hefur mamma brýnt fyrir mér oft og mörgum sinnum. Lengi vel fannst mér þetta nú bara vera eitthvert innantómt raus í kellingunni og kannski skildi ég aldrei almennilega hvaða boðskapur felst í raun og veru í máltækinu.

Sport
Fréttamynd

Pistill frá Eddu Garðarsdóttur: Griðastaður

Íþróttir eru máttugar. Ekki bara fyrir það eitt að hjálpa okkur að hrista aukakílóin, jafnvel að hrista þau AF okkur. Kraftur þeirra snertir okkur á marga vegu, sérstaklega okkur sem erum að djöflast í þessu reglulega. Regluleg hreyfing hressir, bætir og kætir.

Sport
Fréttamynd

Á virkilega ekki að taka í taumana?

Staða íslenska landsliðsins versnar enn eftir neyðarlegt 4-0 tap gegn Ungverjum í vikunni. KSÍ verður að grípa til aðgerða strax og hefja endurreisnarstarf. Ímynd A-landsliðs karla er í molum.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Pistillinn: Það sem hefur bjargað mér eru íþróttirnar

Að vera sáttur við sjálfan sig er ekki sjálfgefið. Eins og lífslöngunin, andagiftin, innileikinn og auðmýktin verður þessi sátt að koma innan frá og út. Hún kemur ekki af sjálfu sér. Eins og með hamingjuna verðum við að vinna fyrir þessari sátt.

Sport
Fréttamynd

Pistillinn: Ómetanlegur stuðningur

Frjálsar íþróttir flokkast að forminu til sem einstaklingsíþróttir en í mínum huga er það alls ekki svo. Jú vissulega fer ég ein út á hlaupabrautina og inn í kúluvarpshringinn. Ég get ekki stólað á að liðsfélagi minn komi mér til bjargar þegar ég lendi í vandræðum og úrslitin, hversu hratt ég hleyp eða langt ég kasta, velta eingöngu á minni eigin frammistöðu og engum öðrum.

Sport
Fréttamynd

Pistillinn: Ekki væla yfir dómaranum í fjölmiðlum

Það er oft þægilegt að hafa einhvern til að skella skuldinni á þegar illa gengur. Réttlæta lélega frammistöðu. Ég þekki það enda oft gert það sjálfur, íþróttahúsið lélegt, rútan óþægileg, hinir gaurarnir mun stærri, miklu ríkari líka og eiga því að geta eitthvað, ég stóð mig því fínt "per dollar“. Ég spilaði við Yao Ming, hann át okkur lifandi, en miðað við launin hans þá vann ég eiginlega.

Körfubolti
Fréttamynd

Utan vallar: Flotið sofandi að feigðarósi

Miðvikudagurinn 29. júní 2011 er svartur dagur í íslenskri knattspyrnusögu. Þá hrundi íslenska karlalandsliðið niður í 122. sætið á styrkleikalista alþjóða knattspyrnusambandsins. Versti árangur Íslands á listanum fram að þessum degi var 117. sæti. Ekki er hægt að segja að listinn sé marklaus. Hann tekur mið af árangri landsliðanna og árangur Íslands síðustu ár er nákvæmlega enginn.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Pistillinn: Erum ekki í þessu fyrir peningana

Á minni lífsleið hef ég búið í fjórum löndum. Alls staðar hef ég verið spurð að því hvernig í ósköpunum við Íslendingar getum átt svona marga íþróttamenn í fremstu röð. Mín kenning er sú að meginþorri Íslendinga sé öfgasinnaður. Taki hlutverk sitt í samfélaginu alvarlega og sé mjög gjarn á að fara yfir strikið í áhugamálum sínum. Og við erum ávallt stolt af sjálfum okkur og því sem okkar er og verður.

Fótbolti
Fréttamynd

Pistillinn: Fórnir eða forréttindi?

Ég er oft spurð að því hvort ég þurfi ekki að fórna miklu fyrir íþróttirnar. Þá er oftast verið að vísa í þá staðreynd að líf mitt er töluvert frábrugðið lífi flestra jafnaldra minna. Ég drekk ekki, fer sjaldan út á lífið, ég borða ekki óhollan mat og það er ekki hlaupið að því fyrir mig að skreppa út á kvöldin að hitta vini mína þegar það er morgunæfing daginn eftir og ég þarf að fara snemma að sofa.

Sport
Fréttamynd

Pistillinn: Ekkert stress, þetta er bara boltaleikur

Ég hef mikið keppnisskap og sigurvilja. Stundum svo mikið að það mætti halda að það eina sem skipti máli í heiminum væri hvort ég og mitt lið ynnum næsta leik eða titil. Ég finn fyrir pressu að standa mig og vinna. Ef það tekst ekki er allt ómögulegt. Baráttan er svo mikilvæg að hún verður að vinnast. En stundum kynnist maður fólki sem setur hlutina í samhengi og kennir manni hvað alvöru barátta er.

Körfubolti
Fréttamynd

Pistillinn: Að vera sinn eigin besti æfingafélagi

Góður æfingafélagi er gulls ígildi. Best er ef heilbrigð samkeppni ríkir á milli æfingafélaga svo að báðir aðilar þurfi sífellt að vera á tánum og leggja sig fram við æfingar. Góður æfingafélagi ætti líka að veita manni fullan stuðning og hvatningu.

Sport
Fréttamynd

Pistillinn: Að skora á sjálfan sig

Karolina Klüft er ein besta frjálsíþróttakona sem uppi hefur verið. Ég hef verið svo ótrúlega heppin að fá að kynnast henni og það hefur vakið mig til umhugsunar um hvað það er sem aðgreinir framúrskarandi afreksíþróttamenn frá þeim sem ná ekki jafn góðum árangri.

Sport
Fréttamynd

Pistillinn: Ciao Carlo

Roman Abramovich, eigandi Chelsea, elskar Meistaradeild Evrópu rétt eins og litlir strákar elska Leiftur McQueen. Hann hefur látið hafa það eftir sér að lag keppninnar sé eitt af hans uppáhalds, keppnisfyrirkomulagið fullkomið og hann þráir bikarinn og hans stóru eyru.

Enski boltinn
Fréttamynd

Pistillinn: Ég vil ekki hlaupa nakinn og allslaus út á vígvöllinn

Fyrir mikilvæga körfuboltaleiki er oft talað um baráttu, ákveðni og vilja sem lykil að sigri. Það er hárrétt þó sumt af þessu ætti ekki að þurfa að innprenta í alvöru leikmenn á ögurstundu. Það sem mér finnst vanta hjá íslenskum liðum er gott "gameplan“ og undirbúningur fyrir leiki, hernaðaráætlun, það er mikilvægt til að fara á næsta stig.

Sport