Pawel Bartoszek

Fréttamynd

Pawel Bartoszek: Róló burt?

Í þriggja mínútna göngufjarlægð við heimili mitt eru að minnsta kosti þrír rólóvellir, opnir almenningi. Sé gengið í fimm mínútur er hægt að velja um sjö ólíka leikvelli. Það er vissulega kærkomið fyrir okkur feðga að geta valið um svo marga staði til að róla okkur á, en því miður er raunin sú að í níu af tíu tilfellum erum við einu gestir þessara ágætu leiksvæða. Sem er fínt ef menn eru félagslega bældir en verra ef menn líta á samskipti við annað fólk jákvæðum augum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Pawel Bartoszek: Tómir stólar

Verkföllin í skipasmíðastöðinni í Gdansk árið 1980 mörkuðu að mörgu leyti upphaf endalokanna kommúnismans í Póllandi. Kveikjan að þeim verkföllum var þegar að iðnaðar- og baráttukonan Anna Walentynowicz var rekin úr starfi, einungis örfáum mánuðum áður en hún átti rétt á eftirlaunum. Verkföllunum lauk með sigri verkamannanna, Anna fékk starfið sitt að nýju og Samstaðan fékkst skráð sem löglegt félag. Þetta var einn fyrsti marktæki sigur stjórnarandstöðuafla á hinum sitjandi stjórnvöldum. Gagnbyltingin var hafin.

Skoðun
Fréttamynd

Ósamræmd próf

Í vikunni mátti lesa fréttir þess efnis að hverfisskólarnir væru að koma aftur samkvæmt nýjum innritunarreglum fyrir framhaldsskólana, en samkvæmt þeim þurfa skólarnir að taka in 45% af nemendum úr skólum sem liggja í grenndinni. Hér er um að ræða óþarfa skerðingu á valfrelsi nemenda auk þess sem verið er að skekkja samkeppni bæði á milli nemendanna og framhaldsskólanna sjálfra.

Fastir pennar
Fréttamynd

Litli-Steinn

Frá tímum styrjaldanna hefur örríkið Liechtenstein grundvallað tilveru sína á afar góðu samstarfi við nágrannaríkið Sviss. Samstarf er kannski ekki rétta orðið. Frekar má segja að Sviss sé eins og stóri bróðir sem fer í ríkið fyrir litlu systur sína sem enn er í menntaskóla.

Fastir pennar
Fréttamynd

Dýr og volgur

Þegar lög um bann við smásölu áfengis kl. 20 á kvöldin voru afnumin í Danmörku á einn stuðningsmaður breytinganna að hafa sagt: „Hvers vegna á hafa það bannað að selja áfengi einmitt á þeim tíma sem menn þurfa mest á því að halda?" Á Íslandi er þessu þveröfugt farið. Sama hvar menn standa í flokki, virðast allir sammála um að því torfundnara og dýrara sem áfengi er því betra.

Fastir pennar
Fréttamynd

Ofstolt og fréttafréttir

Flestir hljóta að fyllast óhug og sorg yfir þeim fréttum sem nú berast frá Haítí. Ef marka má fréttirnar virðist jarðskjálftinn ekki aðeins hafa lagt í rúst höfuðborgina og bundið endi á þúsundir mannslífa heldur einnig laskað sjálfar undirstöður samfélagsins sem veikar voru fyrir. Þeir íslensku björgunarmenn sem drifu sig á hamfarasvæðið áður en sólarhringur var liðinn frá skjálftanum eiga án efa eftir að gera mikið gagn og sjálfsagt er að hæla þeim fyrir skjót viðbrögð. Hins vegar er ekki laust við að það mikla hlutverk sem för íslensku björgunarsveitarinnar hefur fengið í allri umfjöllun um hamfarirnar beri vott um einmitt þá minnimáttarkennd sem þátttaka í slíkum verkefnum ætti að vinna bug á.

Skoðun
Fréttamynd

Skrattamálarafélagið

Þrátt fyrir nafnið þá er heimssýn einmitt eitt af því sem fólk í samnefndum samtökum deilir ekki. Innan raða fylkingarinnar hafa jaðar- og sérhagsmunahópar íslenskra stjórnmála sameinast, frjálshyggjumenn sem trúa á lágmarksríkið, þjóðernissinnar, gamlir Nató-andstæðingar, bændur og útvegsmenn. Þarna eru því sósíalistar sem hata Evrópusambandið fyrir hve kapítalískt það er og kapítalistar sem nýta hvert tækifæri til að líkja því við Sovétríkin; einstaka fólk sem vill fella niður tolla á landbúnaðarvörur og óttaslegnir framleiðendur þeirra. Fólk sem vill þjóðnýta kvótann og fólk sem á hann.

Fastir pennar
Fréttamynd

Tvö hundruð vesen

Hlutir á Íslandi eru ekki verðlagðir í krónum. Þeir eru verðlagðir í veseni. Flestir Íslendingar fá laun greidd í krónum en verðtilfinningin byggist á veseni. Krónurnar eru tölurnar sem við sjáum í heimabankanum og á pósaafrifunum. Krónurnar þykir okkur ekkert sérlega vænt um. Vesenið á sér ýmis birtingarform, eitt er tími, annað eru gömlu kringlóttu málmskífurnar með sjávarfanginu. Þannig er það rangt að það kosti bara 280 krónur að fara í strætó og 80 krónur á tímann að leggja við stöðumæli niðri í bæ. Í hugum flestra kostar hvort tveggja einfaldlega heilmikið vesen.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hreppur eða borg

Þrátt fyrir hina miklu bílaeign þjóðarinnar eru bílar almennt ekki sérlega vel liðinn hlutur. Flestum er raunar afar illa við alla aðra bíla en þeirra eiginn. Hinir bílarnir eru of margir, keyra og hratt, leggja ólöglega, virða ekki stöðvunarskyldur og gefa ekki stefnuljós. Annarra manna bílar eru einhver versti gestur og nágranni sem menn geta óskað sér. Ef „íbúar í nágrenninu“ fengju einhverju ráðið yrðu allar götur annað hvort botnlangar eða einsstefnugötur, eða jafnvel hvort tveggja. Sem væri raunar dálítið fyndið.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hugverkavaktin

Ef einhver væri öruggur um að hlaða niður ólöglega fyrsta Fangavaktarþættinum, þá er það líklegast Ólafur Ragnar, söguhetja úr samnefndum þáttum. Söguþráðurinn skrifar sig nánast sjálfur: „Þetta er sko alveg löglegt, það er ekkert hægt að taka mann fyrir þetta, frændi minn er alltaf að dánlóda svona einhverju stöffi, og það er ekkert gert við hann,“ mundi Ólafur útskýra um leið og hann biði til sölu ylvolga Fangavaktar-mynddiska, beint úr brennaranum. Þátturinn myndi svo enda á Ólafi sitjandi skömmustulegum á meðan lögreglumenn og lögmaður SMÁÍS renna gaumgæfilega yfir hasarmyndirnar og klámið í fartölvunni hans.

Fastir pennar