Óli Kr. Ármannsson

Fréttamynd

Veik króna áfram?

Íslenska krónan er veik, hvað sem líður smástyrkingu síðustu daga. Sumir myndu jafnvel ganga svo langt að segja að hún lægi banaleguna, eða væri í það minnsta á gjörgæsludeild. Og á meðan krónan er veik blæðir almenningi og fyrirtækjum, öðrum en þeim sem reiða sig á útflutning. Forsenda þess að krónunni verði komið af gjörgæsludeildinni er að fyrir liggi sýn á framtíð hennar.

Fastir pennar
Fréttamynd

Reynslunni ríkari

Í fimm mánuði hefur ekkert gerst í deilu Íslendinga við Breta og Hollendinga um Icesave ábyrgðir. Samningafundur var haldinn 5. mars síðastliðinn, daginn fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem Icesave-lögin

Fastir pennar
Fréttamynd

Umgjörðin á að vera í lagi

Sumar starfsstéttir hafa á sér verra orð en aðrar. Þannig heyrast til dæmis oft hnútuköst í garð lögfræðinga. Sjálfsagt á það rót sína í því að til þeirra leitar fólk helst í vandræðum þar sem óvíst er að allir gangi jafnsáttir frá borði.

Fastir pennar
Fréttamynd

Umræðan verður vonandi vitlegri

Á morgun er formlegt upphaf viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu (ESB), að því gefnu að utanríkisráðherrar aðildarríkjanna leggi blessun sína yfir málið í dag. Full ástæða er til að fagna upphafi viðræðnanna og þeirri vonarglætu sem þær hafa í för með sér.

Fastir pennar
Fréttamynd

Ísland fyrir Íslendinga?

Þjóðremba og ofurtrú á ágæti þess sem sprottið er upp í nærumhverfinu er með leiðigjarnari kenndum. Slíkur rembingur er oftast talinn birtingarmynd ákveðinnar minnimáttarkenndar og því kannski skiljanlegt að hann leggist fremur á smærri þjóðir.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hvar á að skera?

Jafnrétti til náms er ein af grunnstoðum norræns velferðarsamfélags. Í því felst sannur jöfnuður í því að hverjum og einum eru gerð sömu tækifæri til þess að mennta sig. Hvernig fólk svo vinnur úr þeim tækifærum er annað mál. Að loknu grunn- og framhaldsskólanámi á fólk að standa frammi fyrir sömu tækifærum til þess að mennta sig til framtíðar.

Fastir pennar
Fréttamynd

Óli Kr. Ármannsson: Velvild frá Lúx

Áfanga var náð í endurreisn íslensks efnahagslífs með samkomulagi því sem Már Guðmundsson seðlabankasjóri og Yves Mersch, seðlabankastjóri í Lúxemborg, undirrituðu snemma í gærmorgun. Fram til þessa hefur Seðlabankinn í Lúxemborg verið stærsti einstaki erlendi eigandi krónueigna. Samkomulagið léttir þrýstingi af gengi krónunnar og eykur likur á að hér verði hægt að lækka stýrivexti enn frekar og taka fleiri skref í þá átt að draga úr gjaldeyrishöftum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Tækifæri til umbóta á að nýta

Samningur ríkisins við Bændasamtök Íslands, svonefndur búnaðarlagasamningur, rennur út í ár. Bændasamtökin og fulltrúar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins hafa þegar haldið fyrstu fundi um mögulega endurnýjun samningsins. Fullt tilefni virðist hins vegar til að staldra aðeins við og íhuga hvort ekki sé vert að nota þetta tækifæri til að koma á breytingum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Ríkið úti að aka

Ekki löngu fyrir áramót samþykkti ríkisstjórnin að skipta landinu í sjö svæði við gerð sóknaráætlana í landshlutum. Eitt þeirra er svokallað Suðvestursvæði, eða stór-höfuðborgarsvæðið. Skiptingin er hluti af svokallaðri Sóknaráætlun 20/20.

Fastir pennar
Fréttamynd

Vafasamir leiðangrar

Þras líðandi stundar er yfirþyrmandi í almennri umræðu og hverjum sem er hætt við að tapa áttum. Fram sprettur hver kreppuklámhundurinn á fætur öðrum með yfirlýsingar um yfirvofandi greiðsluþrot þjóðarinnar, getuleysi fólks til að standa undir skuldum sínum, meint aðgerðaleysi stjórnvalda, bankanna og um hverja þá aðra sem mögulega er hægt að beina að fingri.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hver vill leið B?

Enn er hver höndin komin upp á móti annarri í björgunarbátnum sem þjóðin velkist í eftir skipbrot stjórnarhátta undangenginna áratuga, hrun krónunnar og fjármálafyrirtækjanna. Síðasti afleikurinn í óhappasögu þessarar þjóðar er upphlaup Samtaka atvinnulífsins (SA) vegna þess að ríkisstjórnin fór ekki að vilja útvegsmanna við endurskoðun á úthlutun veiðiheimilda á skötusel. Samtökin segja ákvörðunina „kornið sem fyllti mælinn" og hafa sagt sig frá stöðugleikasáttmálanum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Óvissuferð

Átök verða styrkist krónan ekki um fjórðung til fimmtung. Þetta voru skilaboð Alþýðusambandsins þegar nýverið var kynnt fremur dökk hagspá. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, sagði að stjórnvöld og Seðlabanki þyrftu að skilja að án slíkrar styrkingar yrðu horfur á atvinnumarkaði ekki bjartar.

Fastir pennar
Fréttamynd

Valdið er fólksins

Sjónarmið í þá veru að í íslensk stjórnmál skorti sterkan leiðtoga skjóta reglulega upp kollinum í almennri umræðu, þótt vera kunni að þau séu algengari úr einum ranni stjórnmálanna en öðrum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Furðuleg afstaða

Samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar sem Viðskiptaráð Íslands hefur gert á meðal forsvarsmanna íslenskra fyrirtækja þá virðist sem meirihluti þeirra vilji hvorki hafa krónuna sem þjóðarmynt, né ganga í Evrópusambandið.

Fastir pennar
Fréttamynd

Virði orðsporsins

Í nýliðnum mánuði skrifaði Risto Penttilä, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Finnlands (EVA) og þingmaður á Evrópuþinginu, lesendabréf í Financial Times sem beint var sérstaklega til okkar, Íslendinga. Skrifin eru í fullri vinsemd og byggja á reynslu Finna.

Fastir pennar
Fréttamynd

Uppgjörs er þörf

Undir lok desember skýrði Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, frá því að á fyrstu mánuðum þessa árs myndi skýrast hver yrði niðurstaðan í fyrstu málunum af þeim um fimmtíu sem hann hefur til rannsóknar. Nú er rétt rúmt ár frá því að komið var á fót embætti sérstaks saksóknara til að rannsaka mögulega saknæma þætti tengda bankahruninu hér.

Fastir pennar
Fréttamynd

Moldviðri

Ef til vill er ákvörðun Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, um að vísa lögum um ríkisábyrgð vegna Ice­save-samninga við Breta og Hollendinga einhver sú versta sem tekin hefur verið í íslenskri stjórnmálasögu. Ekki af því þjóðin eigi ekki að fá að kjósa um mikilvæg mál sem varða framtíðarheill hennar, heldur þess dilks sem málið kann að draga á eftir sér með dýpkun kreppu og versnandi samskiptum við aðrar þjóðir. Ófyrirséð niðurstaða ákvörðunarinnar ræður ágæti hennar.

Fastir pennar
Fréttamynd

Að éta útsæðið

Hrepparígur og útburður gróusagna um nágrannann hefur lengi viðgengist. Ef til vill er ekki óeðlilegt að meira beri á slíku þegar harðnar á dalnum og fólki verður umhugaðra um þá hluti sem nær standa.

Fastir pennar
Fréttamynd

Valkosturinn við alþjóðasamstarf

Gerðar hafa verið lærðar úttektir á mismuninum á stöðu Íslands og Nýfundnalands. Nokkru eftir seinna stríð varð ofan á hjá nágrönnum okkar í vestri að ganga til liðs við Kanada, meðan Íslendingar völdu leið sjálfstæðis og sjálfstjórnar.

Fastir pennar
Fréttamynd

Að fleyta rjómann

Langt er síðan hætt var að flokka nemendur eftir getu í grunnskólum landsins. Hraðferð og hægfærð í nútímaskólastarfi á ekkert skylt við tossabekki fyrri ára.

Fastir pennar
Fréttamynd

Blendnar tilfinningar á þjóðhátíðardegi

Þjóðhátíðardagurinn er í dag og bærst sjálfsagt víða blendnar tilfinningar í brjósti fólks. Þjóðin hefur orðið fyrir gífurlegu áfalli eftir hrun bæði gjaldmiðils og fjármálakerfis og sjálfstraustið er skert. Ekki er því útilokað að einhverjir sveifli fána með hálfum hug í rigningarsudda á Austurvelli í dag.

Fastir pennar
Fréttamynd

Peningar sem vaxa á trjám

Ástæða er til þess að fagna ítarlegri úttekt nefndar sérfræðinga um möguleika þjóðarinnar til þess að úr nettóútstreymi gróðurhúsalofttegunda í mismunandi geirum samfélagsins. Niðurstöður nefndarinnar, sem starfað hefur á vegum umhverfisráðuneytisins frá því á vordögum 2007, voru kynntar síðastliðinn föstudag.

Fastir pennar
Fréttamynd

Að axla ábyrgð

Samkomulag við Breta um lausn Icesave-deilunnar er fagnaðarefni og hluti af úrlausn þeirra mörgu vandamála sem við blasa í endurreisn landsins eftir efnahagshörmungar.

Fastir pennar
Fréttamynd

Upplýsandi ákvörðun

Á morgun kynnir peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvörðun sína um stýrivexti. Ákvörðunin er um margt söguleg. Vöxtum var síðast breytt fyrir mánuði síðan og peningastefnunefndin gaf út þá fyrirætlan sína að vextir yrðu lækkaðir umtalsvert við næstu ákvörðun, sem er á morgun, og í minni skrefum eftir það.

Fastir pennar
Fréttamynd

Grípum ekki til skammgóðs vermis

Í byrjun vikunnar voru lagðar fram til kynningar ráðherrum ríkisstjórnarinnar og stjórnendum háskóla landsins tillögur erlendra sérfræðinga í menntamálum um gagngera endurskipulagningu og áherslubreytingar í menntakerfinu. Vinna sérfræðinganna er hluti af endurmati sem sett var í gang eftir hrun efnahagslífsins og fall fjármálakerfisins snemma vetrar.

Fastir pennar
Fréttamynd

Sársaukafull tilfærsla á valdi

Bankarnir hafa hafið það vandasama verkefni að ganga að eigum fjárfesta sem ekki uppfylla skilyrði lánasamninga. Nýjasta dæmið eru veðköll vegna hlutabréfa í Icelandair Group, en félagið er verður líkast til komið óbeina ríkiseigu að langstærstum hluta þegar bæði Landsbanki og Íslandsbanki hafa farið í gegn um þau mál.

Fastir pennar
Fréttamynd

Enn er kallað á veglega lækkun vaxta

Áframhaldandi varfærnar stýrivaxtalækkanir um 100 til 150 punkta þar sem óvissa ríkir um áframhaldið leiða þjóðina ekki annað en í ógöngur, efnahagslægðin sem við göngum í gegn um verðu dýpri og langvinnari en ella og enn frekar dregur úr trausti umheimsins á íslenska efnahagsstjórn. Þetta er álit skuggabankastjórnar Markaðarins sem birtist í blaðinu í dag.

Fastir pennar
Fréttamynd

Gjaldeyriskreppan eykur á allan vanda

Fimmtánda september í fyrra hefur verið líkt við aðra fræga dagsetningu. Nefnilega 11. september 2001 þegar hryðjuverka árásir voru gerða á Bandaríkin. Árásunum var meðal annars beint að miðstöð fjármála þar í landi. Um miðjan september síðastliðinn voru þó ekki gerðar hryðujuverkaárásir, heldur varð ljóst að fjárfestingarbankinn Lehmann Brothers var farinn á hausinn.

Fastir pennar