Íslandshreyfingin

Fréttamynd

Ómar telur víst að fylgið tvöfaldist að minnsta kosti

Ómar Ragnarsson telur að Íslandshreyfingin eigi að geta fengið að minnsta kosti tíu prósenta fylgi í kosningunum í vor. Hann segir að flokkurinn taki fyrst og fremst fylgi frá Sjálfstæðisflokknum og vinstri grænum, eins og sjáist á könnun Fréttablaðsins í dag, sem gefur flokknum fimm prósenta fylgi.

Innlent
Fréttamynd

Íslandshreyfingin - lifandi land kynnir framboð sitt í dag

Ómar Ragnarsson og Margrét Sverrisdóttir munu í dag kynna framboð sitt til Alþingis á blaðamannafundi í Þjóðmenningarhúsinu. Fram kemur í fréttatilkynningu að framboðið hafi hlotið nafnið „Íslandshreyfingin - lifandi land" og hafi verið úthlutað listabókstafnum I. Áherslumál framboðsins verða kynnt á fundinum en áætlað er að bjóða fram í öllum kjördæmum. Fundurinn verður sem fyrr segir í Þjóðmenningarhúsinu og hefst klukkan tvö síðdegis.

Innlent